Tíska og hönnun

Hvetja fatahönnuði til að taka þátt

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Coke Light í samstarfi við Trendnet og Reykjavík Fashion Festival standa fyrir hönnunarkeppni fyrir upprennandi fatahönnuði en skilafrestur er til 16. mars.

Í meðfylgjandi myndböndum ræða fatahönnuðirnir Magnea Einarsdóttir og Þóra Ragnarsdóttir hjá Cintamani um sinn feril og hvetja fatahönnuði til að láta ljós sitt skína og taka þátt í keppninni. Þær Magnea og Þóra taka báðar þátt í Reykjavík Fashion Festival en myndböndin voru unnin af Tjarnargötu. 

Til mikils er að vinna en vinningshönnunin verður til sýnis í Hörpu á meðan á Reykjavík Fashion Festival stendur þann 29. mars næstkomandi. Þá hlýtur sigurvegarinn einnig 250 þúsund krónur í styrk til að framleiða hönnunina.







)

RFF





Fleiri fréttir

Sjá meira


×