Frávísun í Aserta-málinu 14. mars 2014 20:30 Mynd/Stefán
Héraðsdómur vísaði í dag frá ákæru sérstaks saksóknara á hendur fyrrum handboltamanninum Markúsi Mána Michaelsyni og þremur öðrum sem var gefið að sök að hafa brotið gróflega gegn lögum um gjaldeyrisviðskipti. Málinu var vísað frá vegna óskýrleika í ákæru sérstaks saksóknara en fjórmenningunum var gefið að sök að hafa stundað viðskipti með krónur á aflandsmarkaði í gegnum eignarhaldsfélagið Aserta fyrir rúmlega 14 milljarða króna á árinu 2009 og hafa þannig hagnast um meira en 600 milljónir króna. Í tölvupósti sem Embætti sérstaks saksóknara sendi verjendum mannanna í morgun, fyrir úrskurð héraðsdóms, kemur fram að embættið líti svo á að gjaldeyrisviðskipti mannanna hafi ekki talist brot á gjaldeyrishöftum heldur hafi þeir eingöngu gerst sekir um að hafa stundað viðskipti með gjaldeyri án þess að hafa til þess leyfi. Brot sem er mun vægara en það sem upphaflega var ákært fyrir. Samkvæmt heimildum fréttastofu er ástæðan fyrir því að ekki var hægt að halda ákærunni til streitu að því er varðar brot á gjaldeyrishöftum sú að reglur um gjaldeyrismál voru settar án staðfestingar viðskiptaráðherra eins og lög um gjaldeyrisviðskipti kváðu á um og því sé ekki hægt að byggja refsingu á reglunum. Einn verjenda fjórmenninganna segir úrskurðinn staðfesta að enginn refsiverð háttsemi hafi átt sér stað og að Aserta hafi stundað lögmæt viðskipti. Hann segir skjólstæðing sinn hafa beðið hnekki af málsmeðferðinni þar sem eignir hans hafi meðal annars verið kyrrsettar tvisvar auk þess sem málsmeðferð hafi dregist óhóflega.
Mest lesið „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ Atvinnulíf Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Viðskipti innlent Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Viðskipti innlent Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Viðskipti erlent Stofnandi Bláa lónsins nú formaður stjórnar Viðskipti innlent Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Viðskipti innlent „Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Viðskipti innlent Tónabíó opnar á ný Viðskipti innlent Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Viðskipti innlent Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Stofnandi Bláa lónsins nú formaður stjórnar Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Tónabíó opnar á ný Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Sjá meira