Njarðvíkurkonur fallnar úr Dominos-deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2014 20:56 Pálína Gunnlaugsdóttir og félagar í Grindavík gulltryggðu endanlega sæti sitt í deildinni í kvöld. Vísir/Daníel
Njarðvík féll í kvöld úr Dominos-deild kvenna í körfubolta eftir 26 stiga tap á heimavelli á móti nágrönnum sínum úr Keflavík, 58-84. Sigur hefði heldur ekki dugað liðinu því Grindavík vann Hamar í Hveragerði á sama tíma. Njarðvík er með 12 stig eftir 26 leiki eða sex stigum minna en Grindavík þegar aðeins fjögur stig eru eftir í pottinum. Grindavík hafði auk þess betri stöðu í innbyrðisleikjum liðanna og tryggði sér því áframhaldandi sæti í efstu deild með sigrinum á Hamar í Hveragerði. Kvennalið Njarðvíkur er þar með fallið úr efstu deild aðeins tveimur árum eftir að liðið varð Íslands- og bikarmeistari vorið 2012. Grindavíkurliðið hefur unnið tvo síðustu leiki sína en Lewis Clinch Jr. og Hamid Dicko tóku við liðinu á dögunum af Jóni Halldóri Eðvaldssyni. Crystal Smith skoraði 32 stig í 80-76 sigri á Hamar og Pálína Gunnlaugsdóttir var með 22 stig. Chelsie Alexa Schweers skoraði 30 stig fyrir Hamar. Bryndís Guðmundsdóttir skoraði 20 stig fyrir Keflavík sem tryggði sér þriðja sætið með þessum sigri. Diamber Johnson var með 18 stig og Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 17 stig. Nikitta Gartrell skoraði 24 stig fyrir Njarðvík en Salbjörg Sævarsdóttir var stigahæst íslensku stelpnanna með 11 stig.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport Róbert hættir hjá HSÍ Handbolti Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Handbolti Enduðu á nærbuxunum og gátu ekki flogið Fótbolti Sjáðu dramatíkina á Anfield: Van Dijk skoraði og Simeone brjálaðist Fótbolti „Þessi viðbrögð eru auðvitað ekki í lagi“ Fótbolti „Maður spyr sig hvar maður á heppnina inni“ Íslenski boltinn Vann Ólympíubrons en ætlar að keppa á Steraleikunum og slá heimsmetið Sport Wildcard hugleiðingar Fantasýn: Haaland inn, Salah út og bíða með Isak Enski boltinn Mourinho strax kominn með nýtt starf Fótbolti Fleiri fréttir Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Angel Reese í hálfs leiks bann Kobe Bryant á ennþá langvinsælustu skóna í NBA Finnar með einn óvæntasta sigur í sögu EM Stórleikur Porzingis dugði Lettum skammt Unnu lokaleikhlutann með 26 stigum Sengün stórkostlegur þegar Tyrkir komust í átta liða úrslit Valsmenn búnir að finna Kana Gaf báðum stelpunum sem hann datt á áritaða treyju Sjá meira