Ákvörðunin feli ekki í sér vantraust á seðlabankastjóra Haraldur Guðmundsson skrifar 21. febrúar 2014 11:07 Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, er nú á leið á alþjóðlegan fund seðlabankastjóra sem haldinn er á vegum Alþjóðagreiðslubankans í Sidney í Ástralíu.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur sagt Má Guðmundssyni, seðlabankastjóra, að ákvörðun fjármálaráðuneytisins um að auglýsa stöðu seðlabankastjóra til umsóknar feli ekki í sér vantraust til Más. Ástæða ákvörðunarinnar sé sú að ríkisstjórnin hafi áhuga á að skoða breytingar á skipulagi yfirstjórnar bankans. Þetta kemur fram í orðsendingu sem Már sendi starfsmönnum bankans í morgun. Már undirstrikar í orðsendingunni fyrri yfirlýsingu hans um að hann sé tilbúinn til að hefja nýtt tímabil sem seðlabankastjóri. Í orðsendingunni segir orðrétt:„Ég var skipaður í stöðu seðlabankastjóra til fimm ára frá og með 20. ágúst 2009. Í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, bar fjármála- og efnahagsráðherra að tilkynna mér fyrir lok dags á miðvikudag hvort hann hygðist auglýsa starfið laust til umsóknar, ella hefði skipan mín framlengst af sjálfu sér um fimm ár í viðbót. Á sama tíma og þessi orðsending birtist ykkur mun fjármála- og efnahagsráðuneytið senda frá sér tilkynningu þess efnis að mér hafi verið tilkynnt um að staða seðlabankastjóra verði auglýst laus til umsóknar.Fjármála- og efnahagsráðherra hefur tjáð mér að þessi ákvörðun feli ekki í sér vantraust til mín og mun það koma fram opinberlega. Ástæða ákvörðunarinnar er sögð vera sú að ríkisstjórnin hefur áhuga á að skoða breytingar á skipulagi yfirstjórnar bankans. Af þeim sökum vilja stjórnvöld hafa meira svigrúm en þau telja að yrði til staðar ef fimm ára ráðning mín yrði ákveðin nú.Á næstu vikum mun skýrast betur hvernig staðið verður að framhaldi þessa máls. Mér er tjáð að ekki standi til að ganga gegn sjálfstæði bankans né faglegri yfirstjórn. Ég hef áður lýst því yfir að ég er tilbúinn að hefja nýtt tímabil sem seðlabankastjóri og sú yfirlýsing stendur. Verði hins vegar gerðar lagabreytingar sem fela í sér að eðli starfsins breytist eða breytingar verða á umsóknarferlinu sjálfu verð ég að leggja nýtt mat á málið. Það verður því að bíða og sjá og ekki má gefa sér fyrirfram hvort slíkar breytingar eru til hins verra eða betra enda eru góð orð um að sérfræðiþekking Seðlabankans verði nýtt í því ferli sem framundan er.“
Tengdar fréttir Vantraust milli ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans Landsbankinn segir afstöðu forsætisráðherra til greiningar Seðlabankans veikja trú markaðsaðila, almennings og alþjóðlegra matsfyrirtækja á að hér takist að koma á langþráðum efnahagslegum stöðugleika og stefnu í stjórn efnahagsmála. 13. febrúar 2014 14:28 Einn seðlabankastjóri eða þrír? Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segist gera ráð fyrir því að til skoðunar sé fjölgun seðlabankastjóra. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir meiriháttar breytingar ekki fyrirhugaðar. 19. febrúar 2014 07:15 Fjölmörg tilefni til að breyta Seðlabankanum Fjármálaráðherra vill ekki svara því hvort staða Más Guðmundssonar verði auglýst áður en frestur til þess rennur út á fimmtudag. Telur fjölmörg tilefni til að breyta lögum um bankann. 18. febrúar 2014 20:15 Sendi Seðlabankanum tóninn á Viðskiptaþingi Forsætisráðherra sagðist ekki skilja hvers vegna Seðlabankinn legði meiri áherslu á að gera óumbeðna úttekt á áhrifum skuldaleiðréttingarinnar á meðan stjórnvöld biðu enn eftir greiningu á greiðslujöfnuði Íslands. 12. febrúar 2014 20:49 Ræðst hvort embætti seðlabankastjóra verður auglýst í dag Koma mun fram í dag hvort embætti Seðlabankastjóra verði auglýst til umsóknar. 20. febrúar 2014 10:16 Már fær að vita um framtíð sína eftir viku Ríkisstjórninni ber að tilkynna seðlabankastjóra í síðasta lagi fimmtudaginn 21. febrúar hvort hún hyggst auglýsa stöðu hans til umsóknar. 14. febrúar 2014 16:14 Mest lesið Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti innlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Sjá meira
Vantraust milli ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans Landsbankinn segir afstöðu forsætisráðherra til greiningar Seðlabankans veikja trú markaðsaðila, almennings og alþjóðlegra matsfyrirtækja á að hér takist að koma á langþráðum efnahagslegum stöðugleika og stefnu í stjórn efnahagsmála. 13. febrúar 2014 14:28
Einn seðlabankastjóri eða þrír? Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segist gera ráð fyrir því að til skoðunar sé fjölgun seðlabankastjóra. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir meiriháttar breytingar ekki fyrirhugaðar. 19. febrúar 2014 07:15
Fjölmörg tilefni til að breyta Seðlabankanum Fjármálaráðherra vill ekki svara því hvort staða Más Guðmundssonar verði auglýst áður en frestur til þess rennur út á fimmtudag. Telur fjölmörg tilefni til að breyta lögum um bankann. 18. febrúar 2014 20:15
Sendi Seðlabankanum tóninn á Viðskiptaþingi Forsætisráðherra sagðist ekki skilja hvers vegna Seðlabankinn legði meiri áherslu á að gera óumbeðna úttekt á áhrifum skuldaleiðréttingarinnar á meðan stjórnvöld biðu enn eftir greiningu á greiðslujöfnuði Íslands. 12. febrúar 2014 20:49
Ræðst hvort embætti seðlabankastjóra verður auglýst í dag Koma mun fram í dag hvort embætti Seðlabankastjóra verði auglýst til umsóknar. 20. febrúar 2014 10:16
Már fær að vita um framtíð sína eftir viku Ríkisstjórninni ber að tilkynna seðlabankastjóra í síðasta lagi fimmtudaginn 21. febrúar hvort hún hyggst auglýsa stöðu hans til umsóknar. 14. febrúar 2014 16:14