Heilahristingur sem byggir upp góða sjálfsmynd Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 1. febrúar 2014 14:19 Haraldur Finnsson og Eva Rós Anh Phuong Le skoða snúin stærðfræðidæmi saman. VÍSIR/VALLI
Haraldur Finnsson og Eva Rós Anh Phuong Le eiga ekki sérlega margt sameiginlegt en hittast þó einu sinni í viku og eyða góðri stund saman. Haraldur er sjálfboðaliði í verkefninu Heilahristingur og aðstoðar börn af erlendum uppruna með heimanámið. Eva Rós er í tíunda bekk og hefur mætt í hverri viku frá því að hún var sex ára. Þau segja bæði að verkefnið sé gefandi og afar mikilvægt. „Ég flutti til Íslands þegar ég var tveggja ára en náði ekki tökum á tungumálinu fyrr en ég fór í skóla og fékk aðstoð við heimanámið,“ segir Eva Rós. Hún segist enn eiga erfitt með að skilja til dæmis þjóðsögur og löng, erfið orð. „Um daginn kom í prófi dæmi um gamla, íslenska tónlist og ég þekkti ekki eitt einasta lag.“ Eva Rós segir foreldra sína ekki geta aðstoðað sig við lærdóminn og því fari hún í hverri viku og þiggi aðstoð. „Sumir sjálfboðaliðarnir í heimanáminu eru orðnir vinir mínir og gott að spyrja þá um alls konar hluti. Enda hitti ég ekki marga Íslendinga, nema bara í skólanum.“ Haraldur segir sömu börnin koma aftur og aftur og því skapist fallegur vinskapur. „Það sem hvetur mig mest í þessu starfi er hvað maður sér miklar framfarir hjá einstaklingnum, hreinlega stökkbreytingar. Framfarirnar eru ekki síst fólgnar í því að börnin fá sjálfstraust og þeim finnst þau ráða við námið. Mér finnst verst að það komi ekki fleiri krakkar, því það er víst að þörfin er til staðar.“ Haraldur segir skólana og kennara í lykilhlutverki við að vísa börnunum í heimanámsaðstoðina. „Þessi börn eru ekki endilega framfærin og eru feimin við að koma. Það er svo margt annað sem þau þurfa að takast á við, að búa í nýju samfélagi og læra tungumálið. Einnig eru mismunandi aðstæður heima fyrir og þá þarf skólinn að vera öflugur að benda á þau úrræði sem eru til staðar.“ Haraldur er gamall skólahundur, eins og hann segir sjálfur, og starfaði sem skólastjóri í fjöldamörg ár. Nú er hann hættur en þegar hann sá kynningu hjá Rauða krossinum á verkefninu kviknaði eitthvað í honum. „En maður þarf ekki að vera kennari til að vera sjálfboðaliði. Forsendurnar eru að kunna tungumálið og vera til staðar fyrir börnin. Fyrst og fremst er þetta ótrúlega gefandi starf því maður finnur hvað þetta skiptir miklu máli.“Kristín Vilhjálmsdóttir hefur stýrt verkefninu frá upphafi.VÍSIR/VALLIBörnin læra að nota bókasafnið Verkefnið Heilahristingur, heimanámsaðstoð fyrir börn, hefur verið starfrækt í fimm ár í þeirri mynd sem það er núna. Kristín Vilhjálmsdóttir hefur stýrt verkefninu frá byrjun. „Fyrir utan heimanámsaðstoðina þá lítum við á þetta sem menningaruppeldi, að kenna börnunum að nota bókasafnið. Einnig er þetta gott fyrir félagsleg tengsl, að koma og hitta vini og kynnast nýjum þvert á þjóðerni.“ Kristín tekur fram að aðstoðin sé ekki eingöngu fyrir börn af erlendum uppruna heldur alla nemendur sem þurfa á stuðningi að halda. Stundum reynist þó erfitt að koma upplýsingum til nemenda. „Best er þegar börnin koma með bekknum sínum, fá kynningu á verkefninu og skoða bókasafnið. Mörg börn hafa aldrei farið inn á bókasafn en við höfum séð að þau sem koma nota bókasafnið í auknum mæli og draga til dæmis fjölskylduna með sér um helgar.“ Verkefnið er samstarf Reykjavíkurdeildar Rauða krossins, Borgarbókasafnsins og nú nýlega kom skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar inn í verkefnið. Kristín vonar að það muni verða til þess að fleiri börn nýti sér aðstoðina. „Það gengur hins vegar vel að fá sjálfboðaliða, hér erum við með fólk á öllum aldri. Framhaldsskólanemendur sem eru frábærar fyrirmyndir fyrir börnin, og eldra fólk sem er hætt að vinna og hefur nægan tíma til að spjalla, hlusta og veita góð ráð.“
Mest lesið Forsetavaktin: Halla Tómasdóttir kjörin forseti Innlent Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Innlent Batt á sig klút til heiðurs Höllu Innlent Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Innlent Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Innlent Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Innlent Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Innlent Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Innlent Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu Innlent Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Innlent Fleiri fréttir Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Stöðugt hraunflæði til tveggja átta Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Kosningarnar gerðar upp Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Batt á sig klút til heiðurs Höllu Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Katrín ávarpaði stuðningsmenn: „Ég sé ekki eftir þessu“ Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Halla Tómasdóttir er efst Katrín sér ekki eftir framboði sínu Fyrstu tölur úr Reykjavík suður: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Segir klútabyltinguna vera hafna Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Fyrstu tölur úr Norðausturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Halla Hrund: „Þetta ferðalag mun binda okkur saman út ævina“ Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Alls konar dýnamík geti komið inn við myndun tveggja turna Beið í klukkustund eftir að fá að kjósa „Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Ráðinn slökkviliðsstjóri á Suðurnesjum Skipuð í embætti fiskistofustjóra Kjörsókn utankjörfundar minni en 2020 Sjá meira