Snorri: Væri gaman að stríða Dönum hérna Henry Birgir Gunnarsson í Herning skrifar 21. janúar 2014 17:59 "
Þetta verður gaman. Svona á þetta að vera og fínt ef þetta væri svona á hverjum einasta leik," sagði Snorri Steinn Guðjónsson eftir æfingu íslenska landsliðsins í dag. Strákarnir voru að undirbúa sig fyrir lokaleik milliriðilsins sem er gegn Dönum. Stemningin á leiknum á eftir að vera rosaleg eins og í fyrri leikjum Dana í keppninni. "Þetta eru skemmtilegustu leikirnir. Auðvitað væri skemmtilegra ef þetta væri hreinn úrslitaleikur um sæti í undanúrslitum. Staðan er eins og hún er en við hljótum að geta gefið allt í þennan leik." "Þetta skiptir máli fyrir okkur og það gæti verið gaman að stríða Dönum hérna. Við munum gera allt sem við getum til þess að gera þetta að alvöru leik." Þó svo einhverjir lykilmenn verði hvíldir þá veit Snorri sem er að hópur Dana er sterkur. "Þetta er eitt besta landslið heims og kannski það besta. Þeir eiga tvo menn í hverja stöðu. Það er ekki í blóðinu hjá þeim að slappa af og þeir verða með allt þetta fólk á bak við sig. Það ætti að kveikja í þeim þó svo þessi leikur skipti þá ekki höfuðmáli." Snorri lék með danska stórliðinu AG á sínum tíma og tók þá meðal annars þátt í leikjum á Parken. "Ég held það verði meiri stemning hér. Það var sérstök upplifun á Parken og frábært. Stemningin hér er stórkostleg og þetta verður gaman. Þessi stemning er með því betra sem maður hefur séð."
EM 2014 karla Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Sjá meira