Ekki sammála valnefndinni og gaf liðsfélaganum verðlaunin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2014 11:15 Mikkel Hansen fagnar sæti í undanúrslitum með félögum sínum. Mynd/AFP
Mikkel Hansen hefur spilað vel með danska landsliðinu á EM í handbolta en danska stórskyttan verður vonandi hvíld í kvöld þegar Danir mæta Íslendingum í lokaleik riðilsins. Mikkel Hansen er sá leikmaður á mótinu sem hefur gefið langflestar stoðsendingar (36 í 5 leikjum eða 7,2 í leik) og hefur þar þrettán stoðsendingar forskot á næstu menn sem eru Nikola Karabatic hjá Frakklandi og Filip Mirkulovski hjá Makedóníu. Hansen gefur hinsvegar ekki bara stoðsendingar á félaga sína í danska landsliðinu. Danir tryggðu sér sigur í milliriðlinum með 28-24 sigri á Ungverjum og Mikkel Hansen var þá valinn besti maður liðsins eftir að hafa verið með fimm mörk og átta stoðsendingar í leiknum. Mikkel klikkaði samt á helmingi skota sinna (5 af 10) og tapaði fimm boltum og hann sjálfum þótt hann ekki eiga verðlaunin skilin. Mikkel var því fljótur að afhenda liðsfélaga sínum Thomas Mogensen verðlaunin. „Þetta var mjög einfalt. Mogensen var bestur í okkar liði og það sáu allir að ég átti ekki minn besta leik. Mér fannst hann eiga þetta skilið," sagði Mikkel Hansen við Jyllandsposten. Thomas Mogensen var með 5 mörk (í 6 skotum) og 5 stoðsendingar í þessum leik. „Þetta var samt bara í fyrsta sinn í okkar leikjum þar sem ég var ekki sammála valnefndinni. Kannski gleymdu þeir bara að horfa á annan hálfleikinn í þessum leik," sagði Mikkel Hansen sem er oftast mjög léttur í viðtölum við danska fjölmiðla.
EM 2014 karla Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti „Eins og fjölskylda í sólarlandaferð“ Fótbolti Fleiri fréttir Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Sjá meira