Gleði og eftirvænting í hverju andliti Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 14. janúar 2014 19:35 myndir/KFUM
Sjálfboðaliðar á vegum verkefnisins Jól í skókassa sem félagið KFUM stendur fyrir hafa nú afhent þær gjafir sem verkefninu barst fyrir jólin. Gjafirnar fara til barna í borginni Kirovograd í Úkraínu en þar ríkir mikil fátækt. „Við fórum á tvö munaðarleysingjaheimili, tvö sjúkrahús, geðsjúkrahús og á lítinn leikskóla. Svo fórum við líka inn á heimili hjá nokkrum börnum og á bókasafn þar sem félagasamtök hafa komið upp aðstöðu fyrir mikið veik börn,“ segir Mjöll Þórarinsdóttir, einn sjálfboðaliða KFUM sem fór út til þess að afhenda gjafirnar í ár. SJálfboðaliðarnir lögðu af stað frá Íslandi 30. desember og voru komin til baka 5. janúar.Mjöll afhendir lítilli stúlku gjöf.Hún segir að mjög gaman hafi verið að fylgjast með því þegar börnin fengu gjafirnar. Eftirvæntingin hafi verið mikil. Börnin hafi beðið spennt eftir að röðin kæmi að þeim til að fá afhenda gjöf. Þau þurftu svo að bíða þar til allir höfðu fengið sinn pakka til að mega opna. „Þá varð eins og sprenging, það var svo gaman þegar þau opnuðu gjafirnar. Það var ofboðslega gaman að sjá andlitin á þeim, hvernig alvarlegi svipurinn hvarf og gleðibros kom í staðinn,“ segir hún. Verkefnið Jól í skókassa hefur verið í gangi fyrir hver jól síðan árið 2004. Eins og fram kom á Vísi fyrir jól eru pakkarnir sendir til þessa fátæka svæðis í Úkraínu. Á hverju ári fara Íslendingar út til þess að afhenda gjafirnar. Allt starf í kringum verkefnið er sjálfboðastarf.
Mest lesið Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Innlent Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Innlent Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Innlent Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Innlent Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Innlent Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Innlent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ Innlent Fleiri fréttir Íslandsmet slegið í málþófi Ekið á sjö ára barn í Borgartúni Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Skorið á bönd palestínska og úkraínska fánans Konan er komin í leitirnar Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Alls 246 ökumenn sektaðir og átta sviptir vegna hraðaksturs Eldri borgarar skemmtu sér í múmínkastalanum Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Handviss um að Sjálfstæðisflokkurinn fái yfir þrjátíu prósent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Skráningargjöld, fylgistap og gettó á Gasa Bæjarráð Voga vill gera ráð fyrir flugvelli í Hvassahrauni Leggur til þjóðaratkvæðagreiðslu um bókun 35 Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Flugvél Play lenti í hagléli og þurfti að snúa við Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Óskar viðbragða ráðherra við löngum afgreiðslutíma Lögregla lýsir eftir heilabilaðri konu á Akureyri „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Vilja taka fjármálaáætlun til umræðu Einu verslun Þingeyringa lokað Aðsóknarmet slegið í lögreglunám Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Lögreglan lýsir eftir Hebu Ýr Öll tölfræði um málþófið á einum stað: Íslandsmet á næsta sólarhring „Þetta er bara hálfkák og ekkert annað“ Sjá meira