Lackovic ekki með Króötum á EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2014 22:29 Blazenko Lackovic í leik með króatíska landsliðinu. Mynd/AFP
Króatar verða án reynsluboltans Blazenko Lackovic á EM í handbolta í Danmörku en stórskyttan varð að draga sig út úr hópnum vegna hnémeiðsla. Blazenko Lackovic hefur verið lykilmaður í króatíska landsliðinu undanfarin áratug en meiðsli á hné tóku sig upp í æfingaleik á móti Túnis þegar hann lenti í samstuði við leikmann Túnis. Lackovic spilar með þýska liðinu HSV Hamburg og hefur skorað yfir 570 mörk fyrir landsliðið.Slavko Goluza, þjálfari Króatíu, ákvað í framhaldinu að skilja Lackovic eftir heima. „Það er slæmt að þurfa að skilja Lackovic eftir en við höfum bara ekki tímann til að bíða eftir að hann nái sér góðum," sagði Goluza á blaðamannafundi í Króatíu. Þar sem Blazenko Lackovic er ekki með eru einu vinstri skyttur liðsins þeir Damir Bicanic og Stipe Mandalinic. Damir Bicanic spilar með Chambéry í Frakklandi en Mandalinic er hjá RK Zagreb í Króatíu. Króatar hafa unnið verðlaun á síðustu þremur Evrópumótum, voru í 2. sæti 2008 og 2010 og unnu síðan bronsið í Serbíu fyrir tveimur árum. Þeir eru í riðli með Svíþjóð, Hvíta-Rússlandi og Svartfjallalandi á EM og fyrstu leikurinn er á móti Hvíta-Rússlandi á mánudaginn.
EM 2014 karla Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Sport „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira