Pútín og Pórósjenkó ræðast við í Minsk 26. ágúst 2014 08:08 Rússar segja nú að hermenn þeirra sem úkraínskar hersveitir handsömuðu í gær innan landamæra Úkraínu hafi verið þar á ferð fyrir mistök. Vísir/AP
Petro Pórósjenkó forseti Úkraínu hittir í dag kollega sinn Vladimír Pútín Rússlandsforseta á leiðtogafundi í Minsk í Hvíta-Rússlandi. Búist er við hitafundi en samskipti ríkjanna hafa verið afar slæm síðustu misserin og sérstaklega síðustu vikurnar. Í gær greindu úkraínsk yfirvöld meðal annars frá því að hermenn stjórnarhersins hefðu tekið tíu rússneska hermenn höndum innan landamæranna í austurhluta Úkraínu. Rússar hafa þráfaldlega neitað því að þeir styðji við bakið á uppreisnarmönnum í austurhlutanum sem vilja halla sér meira að Rússlandi. Rússar segja nú að hermenn þeirra sem úkraínskar hersveitir handsömuðu í gær innan landamæra Úkraínu hafi verið þar á ferð fyrir mistök. Tíu fallhlífahermenn Rússa eru nú í haldi Úkraínumanna og er þetta í fyrsta sinn sem rússneskir hermenn nást í Úkraínu en þarlend stjórnvöld hafa lengi haldið því fram að Rússar taki fullan þátt í hernaði aðskilnaðarsinna gegn stjórnarhernum. Málið er viðkvæmt sérstaklega í ljósi þess að forsetar Úkraínu og Rússlands hittast síðar í dag. Ekki er þó búist við að viðræðurnar skili miklu enda er gjá á milli deiluaðila. Rússar krefjast þess að Úkraínumenn geri tafarlaust vopnahlé í austurhéruðunum en Úkraínumönnum gengur vel í baráttunni við uppreisnaröflin og því er talið afar ólíklegt að þeir fallist á það. Rúmlega tvö þúsund manns hafa fallið í átökum síðustu mánaða eftir að héröðin Luhansk og Dónetsk lýstu yfir sjálfstæði frá Úkraínu. Það gerðu aðskilnaðarsinnarnir í kjölfarið á ákvörðun Rússa að innlima Krímskaga. Pórósjenkó Úkraínuforseti ákvað í gær að leysa upp þingið og boða hann til kosninga þann 26. októbert næstkomandi. Pórósjenkó sagði í fjölmiðlum ytra í gær að ennþá væru margir stuðningsmenn Viktor Janúkóvitsj, fyrrum forseta, inn á úkraínska þinginu og því ætti þjóðin að fá tækifæri til að velja sér nýja þingmenn.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira