Hreyfing komin á mál lífeyrissjóða vegna launa slitastjórnar Þorbjörn Þórðarson skrifar 4. apríl 2014 18:30 Lífeyrissjóðirnir fimm eru ósáttir við greiðslur til slitastjórnarbankans. Í slitastjórn sitja þau Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson.
Fimm lífeyrissjóðir, sem krefjast þess að Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson í slitastjórn Glitnis endurgreiði slitabúi bankans hátt í hálfan milljarð króna vegna ofgreiddra launa, munu skila greinargerð í málinu í maí næstkomandi. Lífeyrissjóðirnir fimm eru á meðal kröfuhafa Glitnis, en þetta eru Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Gildi lífeyrissjóður, Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda og Festa lífeyrissjóður. Tveir þessara lífeyrissjóða óskuðu eftir því haustið 2012 að fá sundurliðun á launakostnaði slitastjórnar Glitnis og greiðslum til félaga í eigu þeirra Páls Eiríkssonar og Steinunnar Guðbjartsdóttur í slitastjórn bankans. Kröfuhafarnir höfðu grunsemdir að kostnaðurinn væri óeðlilega hár. Í sundurliðuðu yfirliti yfir kostnað kom fram að sameiginlegar greiðslur til slitastjórnarmannanna tveggja, Steinunnar og Páls, ásamt útseldri vinnu fulltrúa á þeirra vegum, hafi numið 842 milljónum króna samtals frá því að slitastjórnin var skipuð í maí 2009 og fram á mitt ár 2012. Lífeyrissjóðirnir fóru fram á að þau Páll og Steinunn endurgreiddu slitabúi Glitnis tæplega hálfan milljarð króna sem þeir telja vera ofgreidda þóknun á tímabilinu frá maí 2009 fram á mitt ár 2012 en tekist er á þessa kröfu fyrir dómstólum. Steinunn sagði í samtali við Vísi í fyrra þegar málið kom fyrst upp að greiðslurnar væru eðlilegt endurgjald fyrir þá vinnu sem hefði verið innt af hendi. Fyrirtaka var í málinu í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Samkomulag náðist um frest til að leggja fram greinargerð í málinu og verður næsta fyrirtaka hinn 2. maí næstkomandi.
Mest lesið Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Sjá meira