Telja slitastjórn hafa oftekið 400 milljónir thordur@frettabladid.is skrifar 2. febrúar 2013 06:00 Slitastjórn Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson mynda slitastjórn Glitnis. Þau voru skipuð í hana af Héraðsdómi Reykjavíkur árið 2009. fréttablaðið/pjetur
Fimm lífeyrissjóðir telja Steinunni Guðbjartsdóttur og Pál Eiríksson, sem sitja í slitastjórn Glitnis, hafa oftekið sér yfir 400 milljónir króna í laun fyrir störf sín, og sinna fyrirtækja, fyrir þrotabú bankans. Sjóðirnir vilja að Héraðsdómur Reykjavíkur láti Steinunni, Pál og fyrirtækin endurgreiða þrotabúinu hin ofteknu laun. Þeir hafa sent héraðsdómi bréf þar sem lagðar eru fram þær forsendur sem sjóðirnir telja eðlilegt að stuðst sé við þegar slitastjórnin reikni sér laun. Samkvæmt þeim forsendum hafi þau laun sem Steinunn og Páll hafa greitt sér, alls 842 milljónir króna frá því að þau voru skipuð og fram á mitt síðasta ár, verið mun hærri en sjóðirnir telja eðlilegt. Lífeyrissjóðirnir fimm eru á meðal kröfuhafa Glitnis. Þeir eru Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Gildi lífeyrissjóður, Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda og Festa lífeyrissjóður. Tveir fyrstnefndu sjóðirnir óskuðu eftir því síðastliðið haust að fá sundurliðaðar upplýsingar um launakostnað Glitnis. Þeir vildu sérstaklega fá upplýsingar um laun sem greidd væru til slitastjórnarmanna og hugsanlega til einhverra fyrirtækja á þeirra vegum. Tilgangurinn var að kanna hvort það gæti verið að þóknanir fyrir þau störf sem verið væri að vinna væru óhóflegar. Þegar slitastjórnin neitaði að láta upplýsingarnar af hendi hótuðu sjóðirnir að fara með málið fyrir dómstóla. Í kjölfarið ákvað slitastjórnin að gefa eftir og lét þá hafa sundurliðun á kostnaðinum í lok september 2012. Þar kom fram að sameiginlegar greiðslur til þeirra tveggja, með útseldri vinnu fulltrúa á þeirra vegum, hafi numið 842 milljónum króna frá því að slitastjórnin var skipuð í maí 2009 og fram á mitt síðasta ár. Þetta töldu sjóðirnir ekki vera eðlilega þóknun fyrir opinbera sýslunarmenn. Þeir ráðfærðu sig við aðra lífeyrissjóði sem eiga samþykktar kröfur í bú Glitnis og fengu þrjá til viðbótar til liðs við sig. Hópurinn lét reikna út hvað hann teldi eðlilega þóknun vegna þeirrar vinnu sem Steinunn, Páll og fulltrúar þeirra hafa innt af hendi. Niðurstaða þeirra útreikninga er að slitastjórnarmennirnir, og fyrirtæki þeirra, hafi oftekið sér 383 milljónir króna í þóknanir fram á mitt síðasta ár. Þá á eftir að að taka með í reikninginn þær þóknanir sem þeir hafa greitt sér síðan þá og vaxtakostnað. Samanlagt ætla sjóðirnir að slitastjórn Glitnis hafi oftekið sér yfir 400 milljónir króna vegna vinnu sinnar fyrir búið. Sjóðirnir fimm sendu Héraðsdómi Reykjavíkur, sem skipaði slitastjórnina, bréf í síðustu viku þar sem þeir fóru fram á að dómurinn léti slitastjórnarmennina tvo endurgreiða þrotabúinu hinar ætluðu ofteknu þóknanir.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Sjá meira