Hefði getað svipt sparisjóðina starfsleyfi Þorbjörn Þórðarson skrifar 11. apríl 2014 18:30
Fjármálaeftirlitið hefði getað afturkallað starfsleyfi þriggja sparisjóða þar sem þeir uppfylltu ekki kröfur um eigið fé í meira en ár. FME lét það vera. Ályktanir nefndar um sparisjóði um störf FME eru takmarkaðar, en nefndin telur að engin dæmi séu um að FME hafi ekki sinnt lögbundnu hlutverki sínu við eftirlit með sparisjóðum. Sérstakur kafli í skýrslu rannsóknarnefndar um sparisjóði er helgaður störfum Fjármálaeftirlitsins sem hafði eftirlit með sparisjóðunum.Brotalamir í áhættustýringu Úttektir Fjármálaeftirlitsins á stóru sparisjóðunum á árunum 2007 og 2008 leiddu ljós ýmsar brotalamir í starfi áhættustýringar sparisjóðanna en helstu aðfinnsluefnin vour þau að deildirnar væru ekki nógu stórar. Rakið er í skýrslunni FME hafi þurft að benda bæði Sparisjóðnum í Keflavík og Sparisjóði Mýrarsýslu á að engar reglur um áhættustýringu hafi verið til staðar. Áhættusókn sparisjóðanna leiddi til falls þeirra. Ef áhættustýring var ekki til staðar þá geta lesendur sagt sér að taumhaldið var ekki mikið.Hæft fólk fékkst ekki til að vinna í áhættustýringu SPM Í bréfasamskiptum FME og Sparisjóðs Mýrarsýslu kom fram að hæft fólk fengist ekki til að vinna í áhættustýringu fyrir sparisjóðinn. Og þess vegna hafi áhættustýringu verið ábótavant. Stjórn sparisjóðsins hafi vitað þetta og látið FME vita en þeirri spurningu er ósvarað hvort FME hafi gengið á eftir sparisjóðnum hvað þetta varðar. Rannsóknarnefndin fjallar líka um FME eftir hrun viðskiptaankanna á haustmánuðum 2008. Þennan vetur áttu sparisjóðirnir í miklum lausa- og eiginfjárvandræðum. Þrír sparisjóðir störfuðu í meira en 12 mánuði eftir að FME veitti þeim fyrst frest til að koma eiginfjárhlutfalli sínu yfir lögbundið lágmark. FME hefði getað afturkallað starfsleyfi, en gerði það ekki. Á meðan þeir uppfylltu ekki lengur skilyrði laganna héldu þeir áfram að tapa peningum á kostnað skattgreiðenda. Starfsemi Fjármálaeftirlitsins er dregin saman af skýrsluhöfundum með svofelldum orðum: „Að mati rannsóknarnefndarinnar er vandkvæðum bundið að benda á einstök atriði þar sem Fjármálaeftirlitið sinnti ekki lögbundnu hlutverki sínu við eftirlit með starfsemi sparisjóða.“ Jónas Fr. Jónsson fyrrverandi forstjóri FME sagði í samtali við fréttastofuna í dag að hann teldi að skýrslan væri hófstillt og var hann ánægður með hana. FME í tíð Jónasar fékk öllu verri útreið í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um fall viðskiptabankanna sem birtist fyrir sléttum fjórum árum.Almennar ályktanir Ályktanir rannsókarnefndar Alþingis um sparisjóði um eftirlit FME eru takmarkaðar og að mestu almenns eðlis. Eins og: „Að mati rannsóknarnefndar Alþingis er nauðsynlegt að komið sé á festu í starfsemi Fjármálaeftirlitsins og að henni sé tryggður sá grundvöllur sem nauðsynlegur er til að byggja upp nægjanlega þekkingu og reynslu svo stofnunin sé í stakk búin til að sinna lögbundnu hlutverki sínu." Ekki eru leiðbeiningar frá nefndinni um breytingar á lögum, eða neina lærdóma sem eru hönd á festandi, sem má draga af starfsemi FME fyrir hrun þegar sparisjóðir eru annars vegar.
Tengdar fréttir Heildarkostnaður rúmir 33 milljarðar Í árslok 2012 var stofnfé í eigu ríkisins 1,9 milljarðar króna en á árinu 2013 voru afskrifaðar 213 milljónir króna af stofnfé ríkissjóðs í sparisjóðunum. 10. apríl 2014 14:28 Sparisjóðirnir juku við stofnfé í lok árs til að hækka arðgreiðslur Enginn hafði með lögum eftirlitsskyldu með arðgreiðslum sparisjóðanna. Mikill hagnaður áranna 2004 til 2007 gerði þeim kleift að greiða stofnfjáreigendum drjúgan arð. Rannsóknarnefnd Alþingis segir að djúpt hafi orðið á upphaflegum markmiðum sparisjóðanna 11. apríl 2014 09:15 Fréttaskýring Stöðvar 2: Sparisjóðir að nafninu til Atburðarásin, sem leiddi til hruns íslenska sparisjóðakerfisins sem hefur þegar kostað skattgreiðendur á fjórða tug milljarða króna, hófst um síðustu aldamót. 10. apríl 2014 20:03 Mikilmennskubrjálæði og blekkingar í Sparisjóðunum Vilhjálmur Bjarnason segir nýja menningu í ábyrgðum og veðum hafa ráðið för í rekstri sparisjóðanna. Hirðir fjár sparisjóðanna hafi í raun verið slátrari. 11. apríl 2014 16:30 Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Sjá meira
Heildarkostnaður rúmir 33 milljarðar Í árslok 2012 var stofnfé í eigu ríkisins 1,9 milljarðar króna en á árinu 2013 voru afskrifaðar 213 milljónir króna af stofnfé ríkissjóðs í sparisjóðunum. 10. apríl 2014 14:28
Sparisjóðirnir juku við stofnfé í lok árs til að hækka arðgreiðslur Enginn hafði með lögum eftirlitsskyldu með arðgreiðslum sparisjóðanna. Mikill hagnaður áranna 2004 til 2007 gerði þeim kleift að greiða stofnfjáreigendum drjúgan arð. Rannsóknarnefnd Alþingis segir að djúpt hafi orðið á upphaflegum markmiðum sparisjóðanna 11. apríl 2014 09:15
Fréttaskýring Stöðvar 2: Sparisjóðir að nafninu til Atburðarásin, sem leiddi til hruns íslenska sparisjóðakerfisins sem hefur þegar kostað skattgreiðendur á fjórða tug milljarða króna, hófst um síðustu aldamót. 10. apríl 2014 20:03
Mikilmennskubrjálæði og blekkingar í Sparisjóðunum Vilhjálmur Bjarnason segir nýja menningu í ábyrgðum og veðum hafa ráðið för í rekstri sparisjóðanna. Hirðir fjár sparisjóðanna hafi í raun verið slátrari. 11. apríl 2014 16:30