Furðulega heillandi Sara McMahon skrifar 9. ágúst 2013 22:00 Ryan Gosling fer með aðalhlutverk myndarinnar.
Only God Forgives Leikstjóri: Nicolas Winding Refn Leikarar: Ryan Gosling, Kristin Scott Thomas, Vithaya Pansringarm og Rhatha Phongam. Kvikmyndin Only God Forgives var frumsýnd í Cannes í vor við misjafnar viðtökur áhorfenda. Sumir létu óánægju sína í ljós með því að ganga út í myndinni miðri, aðrir klöppuðu leikstjóranum Nicolas Winding Refn lof í lófa. Í nýlegu viðtali við Fréttablaðið viðurkenndi leikstjórinn að hann væri ekki óvanur viðtökum sem þessum. „Viðbrögðin við myndunum mínum hafa alltaf verið svona og þetta var því ekkert nýtt fyrir mér. Ég tel það vera tákn um velgengni ef fólk elskar það sem aðrir hata, þá hefur maður gert eitthvað rétt í listsköpuninni,“ sagði hann. Only God Forgives skartar Ryan Goslin og Vithaya Pansringarm í helstu hlutverkum. Gosling fer með hlutverk Julians, Bandaríkjamanns sem búsettur er í Bangkok og rekur þar hnefaleikamiðstöð sem yfirskin fyrir eiturlyfjabrask sitt. Bróðir hans býr þar einnig og í upphafi myndarinnar myrðir hann unga stúlku. Lögreglumaðurinn Chang er sendur á staðinn og upphefst þá hin furðulegasta atburðarás. Leikurinn er góður og Chang er sérstaklega heillandi persóna, þrátt fyrir vafasamt siðferði sitt og Gosling er eins og Gosling á það til að vera: fámáll og heillandi. Miðað við viðtökurnar á Cannes vissi maður ekki við hverju mátti búast af myndinni, en hún var fallega skotin (minnti svolítið á hræring af Kill Bill, Twin Peaks og Drive) og lýsingin draumkennd. Manni leiddist aldrei og þó sagan væri furðuleg, varð hún aldrei það furðuleg að maður týndi söguþræðinum. Myndin var þó blóðug og ofbeldisfull og viðkvæmir (líkt og undirrituð) þurftu að loka augunum nokkrum sinnum.Niðurstaða: Áhugaverð mynd sem var listilega tekin en full blóðug fyrir viðkvæma.
Gagnrýni Mest lesið Þáttur Kimmel af sjónvarpsskjánum um óákveðinn tíma Lífið Hvernig getur kona sem er komin í tíðahvörf fundið neistann til að stunda kynlíf aftur? Lífið Kærastinn skyndilega orðinn „pabbi“ Aldísar Lífið Fór ein í eftirpartý með Drake en segir ekki meir Lífið „Þú ert svo falleg“ Lífið Bullandi boltastemning á árshátíð Sýnar Lífið Kynorkan alltumlykjandi hjá óléttu óperusöngkonunni Menning Fjölgar mannkyninu enn frekar Lífið Eiríkur og Alma selja smekklega hæð í Garðabæ Lífið Laufey treður upp með Justin Bieber Tónlist Fleiri fréttir Kórtónleikar: Heilög naumhyggja eða heilalaust suð Barnaefni fyrir fullorðna Balta bregst bogalistin Þú heyrðir rétt: klassík getur verið skemmtileg Smashing Pumpkins pumpuðu upp stemningu – en listin varð undir hávaðanum Kynferðisleg gremja, sænskur senuþjófur og náttúruklám Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Sjá meira