Litla ljót og galni afinn Friðrika Benónýsdóttir skrifar 12. júlí 2013 12:00 Flekkuð
Bækur Flekkuð Cecilia Samartin Þýðing: Nanna B. Þórsdóttir Vaka-Helgafell Suður-amerískar töfraraunsæissögur nutu mikilla vinsælda og aðdáunar á áttunda og níunda tug síðustu aldar. Þar blandaðist saman framandi heimsmynd, gamlar sagnir og oftar en ekki framúrskarandi texti svo úr varð suðupottur ástríðna og lita sem vesturlandabúar hökkuðu í sig. Flekkuð er markaðssett sem angi af þessum meiði, en því miður er þar fátt að finna sem gerði sögur eins og Hús andanna og Hundrað ára einsemd að eftirlætisbókum heillar kynslóðar. Ástæður þess eru mýmargar en þó fyrst og fremst sú að höfundurinn Cecilia Samartin hefur hvorki þá sagnagáfu né stílfimi sem til þarf að skapa eftirminnilega sögu. Saga mexíkósku stúlkunnar Jamilet, sem ber mark djöfulsins á bakinu, og spænska sérvitringsins Peregrínó, sem hún hjúkrar á geðveikrahæli, hefur öll element sem til þarf í magnaða frásögn en lyppast niður í loðmullulegt melódrama þar sem hvorki vottar fyrir mannþekkingu né þjóðfélagslegri gagnrýni. Að líkja bókinni við bækur Isabel Allende er ekki bara lymskuleg og fölsk markaðssetning heldur beinlínis móðgun við Allende. Í stuttu máli fjallar sagan um uppvöxt Jamilet í litlu þorpi í Mexíkó og eineltið sem hún verður fyrir frá fávísum þorpsbúum vegna valbrár á baki sem þjóðtrúin skilgreinir sem merki djöfulsins sjálfs. Heldur er þó farið hratt yfir sögu og lítil áhersla lögð á lýsingar á andrúmslofti þorpsins, óttann og einangrunina. Á unglingsárum flýr Jamilet síðan til Los Angeles þar sem hún fær vinnu við að sinna hinum spænska Peregrínó á hælinu. Eftir það skiptist sagan nokkuð jafnt á milli lýsinga á daglegu lífi hennar og sögu gamla mannsins um það þegar hann gekk Jakobsveginn til Santíagó á Spáni sem ungur maður. Á dæmigerðan Hollywood-máta leysast síðan öll vandamál á örskotsstundu og lesandinn situr eftir klórandi sér í kollinum yfir þessari fljótaskrift á málum. Persónur beggja aðalpersónanna eru auk þess lítt sannfærandi og aukapersónur stela oft á tíðum senunni, einkum hin skapstóra og drykkfellda frænka Carmen. Engin tilraun er gerð til að lýsa aðstæðum ólöglegra innflytjanda í BNA, allt flýtur þetta áfram átakalítið fyrir utan stöku ástarsorg. Sannarlega illa farið með góðan efnivið. Þýðing Nönnu B. Þórsdóttur er hin læsilegasta og rennur vel, en góð þýðing er engan veginn nóg til þess að gera þessa sögu ánægjulega aflestrar. Niðurstaða: Ansi þunn og grunn saga um mjög áhugavert efni.
Gagnrýni Mest lesið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning Fleiri fréttir Klámhundarnir engu gleymt Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Hvað er það versta sem þú hefur gert? Allir komust lifandi út – nema Beethoven Hugljúft geimævintýri líður fyrir þreytandi þúsaldarhúmor Sjá meira