Í þriðja sæti yfir þær sterkustu í Bretlandi Freyr skrifar 1. júní 2013 07:00 Lilja björg jónsdóttir fékk verðlaunapening og sverð fyrir þriðja sætið. „
Ég er í skýjunum,“ segir Lilja Björg Jónsdóttir, sem lenti í þriðja sæti á mótinu Sterkasta kona Bretlands í mínus 75 kg flokki. Þetta var hennar fyrsta erlenda stórmót og árangurinn því glæsilegur. Lilja Björg hefur áður keppt í keppninni Sterkastu kona Íslands og varð í öðru sæti í síðustu keppni. Hún fékk boð um að taka þátt í Sterkustu konu Bretlands, eða Britain"s International Most Powerful Woman, frá Louise Blaides, sem vann einmitt keppnina í ár. „Hún sendi mér skeyti á Facebook og spurði hvort ég vildi ekki taka þátt og ég sló til og ákvað að fara út,“ segir Lilja. „Ég var með frábæran stuðningshóp heima á Hornafirði sem studdi mig í þessu. Ég hefði ekki getað gert þetta án þeirra en þetta voru bæði fyrirtæki og einstaklingar.“ Hún fékk einnig góða hjálp frá eiginmanni sínum Guðna Þór Valþórssyni við undirbúninginn sem stóð yfir í fjóra mánuði. „Hann stóð þétt við bakið á mér.“ Alls tóku sex konur þátt í hennar flokki og varð árangur Lilju Bjargar framar vonum. Hún fékk verðlaunapening fyrir þriðja sætið og forláta sverð sem hún kom með heim til Íslands í gær. Fram undan hjá henni er þátttaka í Sterkustu konu heims í október sem verður einnig haldin í Skotlandi. „Það verður svolítið aksjón þá. Ég er búin að sjá stelpurnar sem eru að fara að keppa þar og maður veit hvernig maður á að vera í október. Ég á góða möguleika,“ segir kraftakonan hress og bætir við að sú sem lenti í öðru sæti í Sterkustu konu Bretlands hafi einnig lent í öðru sæti í Sterkustu konu heims í fyrra. „Núna verður bara tekið á því fram í október.“
Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Góðir straumar á Straumi Menning Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Fleiri fréttir Tæplega þriggja áratuga langt ferðalag á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“