Meira en samt miklu minna Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 9. maí 2013 10:00 Ofbeldisbrellurnar í Evil Dead eru yfirgengilegar og einstaklega vel gerðar.
Bíó, Evil Dead Leikstjórn: Fede Alvarez Leikarar: Jane Levy, Shiloh Fernandez, Lou Taylor Pucci, Jessica Lucas, Elizabeth Blackmore Fjögur ungmenni fara með vinkonu sína, fíkil í fráhvörfum, í skógarkofa til að láta renna af henni í nokkra daga. Í kjallaranum finnast dauðir kettir í tugatali hangandi úr loftinu, auk ævafornrar galdraskruddu sem reynist hinn mesti örlagavaldur. Myndin er endurgerð The Evil Dead, hræódýrrar slettumyndar frá árinu 1981 sem kom leikstjóranum Sam Raimi (Spider-Man, Oz the Great and Powerful) á kortið. Hér er greinilega úr fleiri aurum að moða en ferskleiki frumgerðarinnar er því miður orðinn að samsafni klisja og lítið er gert til að bæta það upp. Leikararnir eru litlaust fallbyssufóður, að undanskildum Eyþórs Inga-klónanum sem hleypir öllu í báli og brand með fikti sínu við bókina. Hann er eina eftirminnilega persóna myndarinnar, en reyndar gæti síða hárið spilað þar stærstan þátt. Það eru þá helst þeir áhorfendur með skæðasta blóðblætið sem fá fullnægju sína, en ofbeldisbrellurnar í Evil Dead eru yfirgengilegar og einstaklega vel gerðar. Það eitt dugir þó ekki til og myndin er frekar broddlaus þegar upp er staðið.Niðurstaða: Augljós eftirbátur frumgerðarinnar en það má flissa yfir sóðaskapnum.
Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Góðir straumar á Straumi Menning Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Fleiri fréttir Tæplega þriggja áratuga langt ferðalag á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“