Glen "Big Baby" Davis kom sér í vandræði um helgina. Þá var hann að lyfta sér upp einu sinni sem oftar og vantaði gistingu.
Meiddi milljónamæringurinn, sem spilar með Orlando í NBA-deildinni, ákvað að gista á ódýru móteli þar sem herbergi kostar rúmlega 7.000 kr. fyrir nóttina. Fer vel með peningana, drengurinn.
Hann greip þó í tómt þar sem öll herbergin voru upptekin. Í örvæntingu sinni greip Davis lyklaborð starfsmanns mótelsins, fleygði því í gólfið og traðkaði síðan á því áður en hann rauk út.
Hann baðst innilegrar afsökunar á athæfinu á Twitter og getur síðan glaðst yfir því að hann verður ekki kærður vegna málsins.
Davis brjálaðist er hann fékk ekki hótelherbergi

Mest lesið


Gæti orðið dýrastur í sögu KR
Íslenski boltinn

Norsk handboltastjarna með krabbamein
Handbolti


Stjarnan staðfestir komu Caulker
Íslenski boltinn




