Ef maður er hraustur þá getur maður allt 27. apríl 2013 23:00 „
Já, ég hef ákveðið að slá upp partýi,“ segir Unnur Steinsson, innkaupastjóri og fegurðardrottning, spurð hvort hún ætli að halda upp á fimmtíu ára afmælið sitt í dag, og ítrekar að hún ætli að bjóða fjölskyldu, vinum og vandamönnum til veislu. „Ég held ég muni síðast eftir tólf ára afmælinu, hef ekki haldið upp á það síðan, svo minnisstætt sé, þannig að það er kominn tími til og þar sem þetta ber upp á laugardag er lítil undankomuleið. Með pressu barnanna og nánustu vina lét ég undan þrýstingi. Það verður bara gaman held ég – líka á þessum degi þegar flaggað verður fyrir mér um allan bæ og þó að eflaust verði víða partý vegna kosninganna þá verður mesta stuðið í mínu!“ Unnur er innkaupa-og vörustjóri hjá Lyfju og sér um vöruval í verslunum, markaðsmál og samskipti við birgja. „Lyfja er með svo margar verslanir að ég er svolítið á þvælingi milli búða,“ segir hún nýkomin af Suðurnesjunum í snjóbyl.Í hesthúsið að loknum vinnudegi. Þegar vinnudegi lýkur skiptir Unnur svo um galla og fer í hesthúsið. „Það er voða notalegt að fara algerlega í annað umhverfi og vera ein með fjórfætlingunum eða fólkinu sínu líka. Það eru margir sem stunda þetta sport innan fjölskyldunnar,“ segir hún glaðlega. Hún kveðst aðspurð vera með tvö hross á járnum. „Ég á bara tvo hesta í dag, það er alveg nóg að sýsla með þá yfir veturinn. Reyni að fara í hesthúsið á hverjum degi og það hefur viðrað svo vel í vetur að það hefði verið hægt að ríða út nánast á hverjum degi þótt ég hafi ekki gert það.“Á eina fimm ára dóttur Barbíleikur er líka nokkuð sem Unnur Birna ver frítíma sínum í því hún á eina fimm ára dóttur og kveðst dálítið upptekin af því. Samtals eru börnin fjögur. „Unnur Birna er elst og svo á ég tvo stráka, tuttugu og sex ára og tvítugan, og þessi litla ákvað að mæta svona í restina og halda mömmu sinni við efnið. Það er alveg dásamlegt. Enda segi ég oft við vinkonur mínar að það sé langt þangað til ég verði eins gömul og þær!“ Hún kveðst líka vera orðin amma. „Unnur Birna á eina dóttur sem er að verða tveggja ára og ég fæ oft að vera mánudagsamma. Það er nú ekki leiðinlegt. Ómetanlegt að eiga svona afleggjara.“ Unnur ólst upp á Seltjarnarnesi og átti þar heima þar til hún var þrjátíu og fimm ára. Þá flutti hún sig í hinn endann á bænum, Árbæinn, þar sem hún segir yndislegt að búa. „Þegar ég áttaði mig á því að Nesið var ekki orðið í leiðinni færði ég mig á hinn jaðarinn. Það var auðvitað hestamennskan líka sem dró mig í Árbæinn. Við förum mikið út úr bænum um helgar því við eigum hús í Stykkishólmi og það styttir leiðina að þurfa ekki að keyra í gegnum alla borgina,“ segir hún. „Við erum innan við tvo tíma að renna í Hólminn. Erum búin að eiga þetta hús þar síðan 2002 og þó að við hjónin eigum hvorugt ættir að rekja þangað þá eigum við fullt af góðum vinum þar og sækjum mikið þangað. Svo höfum við hestana okkar þar á sumrin.“ Unnur segir útiveru og sund í uppáhaldi hjá þeim hjónum og litlu dömunni. „Manni ber skylda til að hugsa um heilsuna,“ segir hún. „Aldur er bara einhver kennitala og ef maður er hraustur þá getur maður allt. Ég er svo heppin að vera heilbrigð og á tímamótum eins og þessum er við hæfi að fá að þakka fyrir það.“
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Fleiri fréttir Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Sjá meira