
Kína knýr að dyrum Íslands
Samkvæmt mati U.S. Geological Survey frá 2008 eru 19% allrar ónýttrar olíu, 30% af því er snertir jarðgas og 20% af fljótandi gasi undir hafsbotni Norðurskautsins. Ísland er ákjósanleg staðsetning fyrir hafrannsóknir á svæðinu og bækistöð vegna jarðborana, vinnslu og flutninga. Minnkun og væntanlegt hvarf íshellunnar leiðir til byltingarkenndrar breytingar í sjóflutningum frá Asíu til Evrópuhafna; norðausturleiðin minnkar flutningskostnað um 40% miðað við siglingu um Súesskurðinn.
Í lykilstöðu
Enn á ný er Ísland í sinni strategísku lykilstöðu og meðal þeirra sem sýna þessu vaxandi áhuga er Kína. Nú er tími til kominn að Bandaríkin styrki tengslin við Ísland.
Með Ilulissat-yfirlýsingunni frá 2008 gerðu fimm aðildarríki Norðurskautsráðsins, Bandaríkin, Kanada, Danmörk-Grænland, Noregur og Rússland, í félagi við Ísland, Svíþjóð og Finnland, tilkall strandríkja til lögsögulegra réttinda á norðurskautinu í samræmi við ákvæði Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Ísland er á norðurskautinu þótt landið sé ekki eitt af strandríkjunum og hefur viðurkennd vinnsluréttindi á hinu væntanlega auðuga landgrunni Jan Mayen samkvæmt tvíhliða samningi við Noreg frá 1981.
Þótt Kína hafi ekki opinberað stefnu sína varðandi norðurskautið verður að teljast ólíklegt að þar sé að finna stuðning við einhliða ákvarðanir Norðurskautráðsins. Stórlega hagkvæm siglingaleið fyrir helsta iðnaðarvöruframleiðanda heims mun liggja um norðurskautið. Og á síðastliðnum árum hafa Kínverjar staðið að meiri háttar átaki til að ná aðgangi að vinnslu málma og orku í mörgum heimshlutum. Opinberar stofnanir í Kína og fræðimenn hafa haldið fram kröfum um að siglingar um svæðið og nýting auðlegðar á hafsbotni þess eigi að koma mannkyni öllu til góða.
Áhugi Kínverja á nánari tengslum við Ísland er til kominn vegna öflunar stuðnings um að komast í Norðurskautsráðið. Forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, kom í opinbera heimsókn til Íslands 2012 með fjölmennu fylgdarliði í forgangi við heimsókn til annarra Evrópulanda. Komu kínverska ísbrjótsins Xuelong var fagnað með móttöku áhafnarinnar hjá forseta Íslands. Risinn Kína og hið örsmáa Ísland, sem skilur óralengd í fjarlægð, eru í samningsviðræðum um tvíhliða fríverslun.
Kínverskar fyrirætlanir um „ferðamannaparadís“ í víðáttumikilli einangrun norðurhluta Íslands má vel líta á sem aðstöðu fyrir verkamenn við byggingu eða þjónustu við hafnir vegna vöruflutninga eða umsvifa á Norðurskautinu. Ísland gæti orðið samtvinnaður þáttur í framkvæmd fyrirætlana Kínverja um að ráðast í fjárfestingu risastórrar járngrýtisvinnslu fyrir milljarða dollara fyrir norðan Nuuk á Grænlandi.
Í sem stystu máli leitast Kína við að marka sér stöðu á norðurskautinu, fyrst á Grænlandi en síðar með stuðningsaðstöðu á Íslandi, sem er ekki aðili að Evrópusambandinu og að því er virðist yfirgefið af Bandaríkjunum. Sú aðstaða gæti hugsanlega haft framtíðarnotkun fyrir herskip í eftirliti á norðurskautinu og norðaustursiglingaleiðinni til Evrópu.
Lífshagsmunamál
Öryggi og stöðugleiki á evrópska norðurskautssvæðinu eru lífshagsmunamál Evrópuríkja og Bandaríkjanna. Til eflingar öryggis er til allrar gæfu hvorki þörf á ný á herstöð á Íslandi né gerð nýrra samninga – viðeigandi ráðstafanir hvíla á gildandi samningum Atlantshafssáttmálanum frá 1949, tvíhliða varnarsamningi Bandaríkjanna og Íslands frá 1951 og samkomulagsatriðum Íslands og Bandaríkjanna frá 2006 um loftrýmiseftirlit, heræfingar og sameiginlegar leitar- og björgunaraðgerðir frá Keflavíkurflugvelli.
Tími er til kominn að Bandaríkin taki fyllilega til greina breytingar í þróun mála. Það felur í fyrsta lagi í sér aukið samráð og nána samvinnu við Ísland, gamlan bandamann, vin og granna í Norður-Atlantshafi. Að lágmarki er að löndin tvö séu tengd traustari böndum varðandi málefni norðurskautsins. Stuðningur við aðgerðir Íslendinga til að tryggja efnahagslegt öryggi og stöðugleika eflir stöðu landsins og þýðingu fyrir Atlantshafsbandalagið á svæði sem hefur vaxandi þýðingu.
Í annan stað á Ísland að eiga þess kost að verða aðili að Atlantshafssáttmálanum um viðskipti og fjárfestingar (The Transatlantic Trade and Investment Pact – TTIP) samhliða því sem Ísland á í aðildarviðræðum við Evrópusambandið.
Í þriðja lagi ættu Bandaríkin á næstu Norður Víkings-heræfingunni að gera samstöðu með Noregi og Íslandi sýnilega. Þá ber að efla samvinnu Íslendinga við bandarísku landhelgisgæsluna í leitar- og björgunaraðgerðum frá Keflavík.
Það er með slíkri ákveðinni stefnu og aðgerðum um gagnkvæma aðstoð og samvinnu sem Íslendingar tryggja frelsi sitt og sjálfstæði. Samtímis eiga Bandaríkin að gera það ljóst að víðtæk samvinna við Ísland, sérstaklega að því er varðar nýtingu auðlinda og verndun umhverfisins, er lykilatriði þjóðarstefnu Bandaríkin á heimssvæði vaxandi þýðingar.
Greinin birtist fyrr í vikunni í New York Times og International Herald Tribune.
Skoðun

Framtíð íslensks menntakerfis – lærum af Buffalo og leiðandi háskólum heims
Sigvaldi Einarsson skrifar

Öryggismenning – hjartað í ábyrgri ferðaþjónustu
Ólína Laxdal,Sólveig Nikulásdóttir skrifar

Nýsamþykkt aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum – aldrei mikilvægari en nú
Halla Þorvaldsdóttir skrifar

Falið heimsveldi Al Thani-fjölskyldunnar
Finnur Th. Eiríksson skrifar

Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu
Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare skrifar

Hið landlæga fúsk
Helga Sigrún Harðardóttir skrifar

Þetta þarftu að vita: 12 atriði
Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar

Ég frétti af konu
Gunnhildur Sveinsdóttir skrifar

Rangfærslur ESB-sinna leiðréttar
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Eineltið endaði með örkumlun
Davíð Bergmann skrifar

Akademísk kurteisi á tímum þjóðarmorðs
Finnur Ulf Dellsén skrifar

Við megum ekki tapa leiknum utan vallar
Eysteinn Pétur Lárusson skrifar

Börnin heyra bara sprengjugnýinn
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Gagnslausa fólkið
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Tjáningarfrelsi
Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson skrifar

Allt mun fara vel
Bjarni Karlsson skrifar

Normið á ekki síðasta orðið
Katrín Íris Sigurðardóttir skrifar

Ég er eins og ég er, hvernig á ég að vera eitthvað annað?
Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar

Við lifum á tíma fasisma
Una Margrét Jónsdóttir skrifar

Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Hinir miklu lýðræðissinnar
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Kolefnishlutleysi eftir 15 ár?
Hrafnhildur Bragadóttir,Birna Sigrún Hallsdóttir skrifar

Gleði eða ógleði?
Haraldur Hrafn Guðmundsson skrifar

Tískuorð eða sjálfsögð réttindi?
Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar

Ráðherrann og illkvittnu einkaaðilarnir
Freyr Ólafsson skrifar

Áttatíu ár frá Hírósíma og Nagasakí
Snæbjörn Guðmundsson skrifar

Er einhver hissa á fúskinu?
Magnús Guðmundsson skrifar

Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Réttmætar áhyggjur eða ósanngjarnar alhæfingar?
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

„Þótt náttúran sé lamin með lurk!“
Sigurjón Þórðarson skrifar