Skoðun

Aukin fjárfesting fram undan í Reykjavík

Dagur B. Eggertsson og formaður borgarráðs skrifa
Flestir eru sammála um mikilvægi aukinnar fjárfestingar til að auka hagvöxt á Íslandi. Þessi grein er til að vekja athygli jákvæðri þróun. Reykjavíkurborg hefur verið að kortleggja stöðuna til að vita hvað er í vændum og styðja við aukna fjárfestingu í Reykjavík, í samræmi við nýja atvinnustefnu borgarinnar.

Hlemmur plús

Íbúðafjárfesting er að aukast aftur í Reykjavík eftir mikla lægð í kjölfar hrunsins. Áætlað hefur verið að um 360 íbúðir verði fullgerðar 2013, um 510 árið 2014, 790 árið 2015 og alls um 2.500 til ársins 2016. Þetta er mjög varlega áætlað. Af svæðum sem eru að fara í uppbyggingu má nefna þrjá reiti í kringum Hlemm. Í Einholti-Þverholti er Búseti að hefja byggingu 230 fjölbreyttra búseturéttaríbúða. Á Hampiðjureit er að hefjast vinna við byggingu 140 íbúða og auglýst hefur verið nýtt deiliskipulag vegna 99 stúdentaíbúða í Brautarholti 7. Í liðinni viku var tekin skóflustunga að 175 íbúðum sem rísa eiga í Mánatúni. Heildarfjárfesting í þessum fimm verkefnum er varla undir 20 milljörðum króna.

Gamla höfnin

Fljótlega verður einnig kynnt nýtt deiliskipulag fyrir Gömlu höfnina. Á reitunum við hliðina á hinu nýja Hótel Marína festi borgin nýverið kaup á landi þar sem reisa má um 250 nýjar íbúðir ásamt þjónustu- og atvinnuhúsnæði. Hönnun þessara húsa getur hafist fljótlega og uppbygging næsta vetur. Þegar er þó hafin bygging 63 nýrra íbúða á lóð gömlu Hraðfrystistöðvarinnar sem ljúka mun síðar á þessu ári. Þær munu allar vera seldar. Í næsta nágrenni leysti svo borgin nýverið til sín Tryggvagötu 13, sem eðlilegt er að komi til uppbyggingar samhliða annarri uppbyggingu á þessu eftirsótta svæði.

Fjárfesting í sjávarútvegi

Hafnarsvæðið er að verða eitt líflegasta og skemmtilegasta svæði borgarinnar með nýjum veitingastöðum, verslunum og hönnunarbúðum á hverju horni. Brim hefur bætt 3,5 milljarða togara í flota sinn í fyrra. Þá úthlutuðu Faxaflóahafnir nýverið lóð til HB-Granda fyrir metnaðarfulla uppbyggingu á nýrri frystigeymslu. Fjárfestingin er tæpur milljarður auk þess sem áform eru uppi um að gera eldri húsum fyrirtækisins til góða, svo sómi sé að.

Fjárfesting í hótel- og gistirýmum

Við könnuðum í fyrra hvað þyrfti að byggja mörg hótel í Reykjavík miðað við fjölgun ferðamanna. Bæta þarf við sem nemur einni Hótel Sögu (um 215 herbergi) á ári, miðað við 5% árlegan vöxt, en tvöfalt meira ef vöxturinn verður eins og síðustu tvö ár. Allvíða er verið að skoða möguleika á hótelbyggingum miðsvæðis í borginni. Af nýjum verkefnum til vinnslu má nefna að nú er í auglýsingu 40 herbergja stækkun hjá Hótel Borg. Gert er ráð fyrir að á Hljómalindareit við Laugaveg muni rísa nýtt hótel síðar á árinu. Nýtt hótel er að opna við Suðurlandsbraut 12. Nýtt gistiheimili og hótel er að opna við Hlemm. Unnið er að deiliskipulagi fyrir hótel á Landssímareit og Ingólfstorg. Útboðsferli fyrir lóðina við hlið Hörpu er hins vegar ólokið.

Vísindagarðar og stúdentaíbúðir

Unnið er hörðum höndum við að reisa um 297 stúdentaíbúðir í Vatnsmýri sem teknar verða í gagnið næsta skólavetur. Reykjavíkurborg vill nýtt átak í byggingu stúdentaíbúða í kjölfarið. Þá vinnur borgin þétt með Háskóla Íslands í því skyni að bygging Vísindagarða í Vatnsmýri hefjist. Það myndi bæta nýrri vídd við þekkingarhagkerfi borgarinnar sem er í fullkomnu samræmi við sýn og atvinnustefnu borgarinnar.

Fjárfesting borgarinnar

Eitt fyrsta verk borgarstjórnarmeirihluta Besta flokksins og Samfylkingarinnar var að flýta mannaflsfrekum framkvæmdaverkefnum fyrir hálfan milljarð sumarið 2010. Samhliða var ákveðið að efna til framkvæmdaátaks árin 2011, 2012 og 2013 þar sem um 6,5 milljörðum yrði varið í framkvæmdir á vegum borgarinnar hvert ár. Þetta voru alger umskipti og meira en tvöföldun framkvæmda frá þriggja ára áætlun fráfarandi meirihluta. Þetta sést í endurbótum í sundlaugum borgarinnar, yfirstandandi skólabyggingum, endurgerð skólalóða og nýjum hjólastígum. Af næstu verkefnum má nefna skóla og sundlaug í Úlfarsárdal, útilaug við Sundhöllina, þjónustumiðstöð í Grafarvogi og endurgerð Hverfisgötu.

Ekki má heldur gleyma metnaðarfullri fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar. Tvö ný hús munu rísa á svæði Háskóla Íslands: Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Hús íslenskra fræða. Hið síðarnefnda er hluti fjárfestingaráætlunarinnar. Það er einnig nýtt fangelsi á Hólmsheiði en bygging þess hefst einnig á þessu ári. Stærsta einstaka framkvæmd næstu ára er jafnframt ein sú mikilvægasta. Það er bygging nýs Landspítala. Borgarstjórn samþykkti skipulag vegna verkefnisins fyrir hátíðir. Standa vonir til þess að útboð fari fram hið fyrsta og nauðsynleg lagasetning varðandi fjármögnun gangi fram á Alþingi fyrir þinglok. Er vonandi að breið samstaða náist um þetta þjóðþrifamál.




Skoðun

Sjá meira


×