Hvað fær barn í veganesti? Jóhann Þorsteinsson skrifar 23. janúar 2013 06:00 Það segir í gömlu dægurlagi að lífið sé undarlegt ferðalag og hótelið okkar sé jörðin. Við sem erum svo lánsöm að vera foreldrar eigum okkur þá ósk að okkur megi takast að nesta börnin okkar vel fyrir þetta ferðalag. Sjálfur er ég svo þakklátur foreldrum mínum sem reyndu sitt besta til að undirbúa mig til þess að verða fær um að standa á eigin fótum, fær um að eiga samskipti og lifa og starfa í flóknum heimi. Sem barn fékk ég tækifæri til að spreyta mig í íþróttum, í tónlistarskólanum, í skátunum, í sumarbúðum og í félagsstarfi KFUM og KFUK. Allt var þetta jákvætt en ég var enginn afreksmaður í íþróttum og tónfræði var ekki minn tebolli. Ég fann mig heima í KFUM og úr því starfi koma mínir æskuvinir. Í bráðum þrjá áratugi hef ég tilheyrt þessu félagi og það hefur mótað lífsýn mína. Fyrr í vetur átti ég samtal við kunningja sem gaf sig á tal við mig af því að 10 ára sonur hans var byrjaður að mæta á fundi fyrir 9-12 ára drengi í KFUM á Akureyri. Hann viðurkenndi að hann þekkti lítið til starfs KFUM og því lék honum forvitni á að vita hvað við værum að gera. Svar mitt var yfirborðskennt, ég sagði honum að við færum í leiki og svo væri alltaf einhver fræðsla. Það sem ég hefði kannski átt að segja honum er að við erum að nesta unga drengi og stúlkur út í lífið. Leikirnir sem við förum í eru ekki bara leikir heldur þjálfun í samskiptum, tjáningu og almennri félagsfærni. Leikir þar sem allir eru af holdi og blóði og þú þarft engin þrívíddargleraugu til að gera leikinn raunverulegri. Fræðslan er ekki bara einhver fræðsla heldur er hún um lausnara lífsins, Jesú Krist og hans kenningu. Jesús sagði: „Elska skalt þú náungann eins og sjálfan þig“ og þegar okkur tekst það þá útrýmum við einelti. Hann sagði: „Elskið óvini ykkar“ og það er erfitt nema þá helst að reyna að líta á þá sem vini. Hann kenndi okkur að fyrirgefa en í fyrirgefningunni felst von um nýtt upphaf. Já, ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að taka þátt í starfi KFUM og KFUK og ég er þakklátur þeim foreldrum sem í dag hvetja börnin sín til að kynna sér starf félagsins og vonandi finna þau sig heima þar og vonandi getur það starf verið hluti af því holla og góða nesti sem er okkur öllum svo mikilvægt í ferðalagi lífsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar