Deila hart um dauða Michaels Jackson 2. maí 2013 09:00 Móðir Michaels Jackson vill að AEG Live verði dæmt fyrir aðild að dauða sonar síns. nordicphotos/getty
Lögfræðingur fjölskyldu Michaels Jackson heldur því fram að tónleikahaldarinn AEG Live hafi ekki staðið sig í stykkinu þegar læknirinn Conrad Murray var ráðinn til að annast popparann sáluga. Réttarhöld eru hafin í Los Angeles í málinu, sem fjölskylda Jacksons, þar á meðal móðir hans Katherine, höfðaði gegn AEG Live. Lögfræðingurinn Brian Panish sagði fyrir rétti að AEG Live væri eini aðilinn sem segðist ekki hafa vitað af fíkn popparans í lyfseðilsskyld lyf. „Í gegnum árin taldi fjölskylda Jacksons og fólk sem þekkti hann að hann glímdi við vandamál vegna lyfjafíknar,“ sagði hann og hélt áfram: „Slökkt var að eilífu á hrífandi rödd hans, tónlistarsnilld, sköpunargáfu og hans stóra hjarta.“ Lögfræðingur AEG Live, Marvin Putnam, sagði að Jackson hefði gætt einkalífs síns vel og vandlega og tónleikahaldarinn hefði ekkert vitað um fíkn hans. „Sannleikurinn er sá að Michael Jackson gabbaði alla. Hann sá til þess að enginn vissi um hans myrkustu leyndarmál.“ Talið er að dómsmálið fjalli að mestu um síðustu mánuðina í lífi Jacksons, sögu hans í fjármálum og heilsufar hans. Búist er við því að börnin hans muni bera vitni og hugsanlega söngkonan Diana Ross, leikstjórinn Spike Lee og upptökustjórinn Quincy Jones. Conrad Murray verður að vonum áberandi í málinu. Læknirinn var dæmdur sekur fyrir manndráp af gáleysi árið 2011 fyrir að láta Jackson fá banvænan skammt af róandi lyfjum og deyfilyfinu Propofol sem drógu popparann til dauða. Í málshöfðun sinni frá árinu 2010 heldur fjölskylda Jacksons því fram að AEG hafi ekki rannsakað bakgrunn Murrays almennilega áður en hann var ráðinn sem einkalæknir Jacksons. Murray átti að fá 150 þúsund dali á mánuði á meðan á tónleikaferðinni This Is It átti að standa en Jackson lést áður en hún hófst. Fjölskyldan telur að fyrirtækið hafi sett of mikinn þrýsting á Murray um að gera Jackson kláran fyrir tónleikaferðina. AEG Live mun halda því fram að Jackson hafi valið Murray sem lækninn sinn og að hann hafi ekki verið starfsmaður fyrirtækisins.
Mest lesið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fleiri fréttir „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Sjá meira