Kanna kanínuplágu í borginni Gissur Sigurðsson skrifar 14. ágúst 2013 13:30 Að sögn Guðmundar B. Friðrikssonar, skrifstofustjóra umhverfisgæða borgarinnar, er ekki hægt að tala um kanínur sem stórt vandamál nema þá ef til vill í Elliðaárdalnum.
Reykjavíkurborg er nú að kanna hvort og hvar kanínur eru orðnar vandamál í borgarlandinu. Útrýmingarherferð er þó ekki alveg á döfinni, þrátt fyrir skýra umsögn Náttúrufræðistofnunar um að útrýma beri öllum kanínum í íslenskri náttúru. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur veitt Reykjavíkurborg undanþágu frá lögum til að bregðast við auknum fjölda kanína í borginni. Reykjavíkurborg samstillir nú aðgerðir með öðrum sveitarfélögum með það að markmiði að stemma stigu við útbreiðslu kanína. Að sögn Guðmundar B. Friðrikssonar, skrifstofustjóra umhverfisgæða borgarinnar, er ekki hægt að tala um kanínur sem stórt vandamál nema þá ef til vill í Elliðaárdalnum, þar sem þeim er gefið yfir veturinn þannig að afföll verða minni en ella. Kanínur voru líka orðnar vandamál í kirkjugarðinum í Fossvogi, þar sem þær ollu gróðurskemmdum og átu blóm af leiðum, eða þar til fækkun varð í stofninum. Nú eru hinsvegar vísbendingar um að stofninn þar sé aftur í sókn. Þá þurfi að kanna landnám þeirra austur af borginni, eða austur af Rauðavatni og í Heiðmörk, þar sem engar hindranir eru, því annars halda þær sig á afmörkuðum svæðum í borginni. En ef til þess kæmi að stemma stigu við fjölgun þeirra á einhverjum svæðum, yrði sennilega eina úrræðið að skjóta þær.
Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Sjá meira