Miami og Memphis áfram Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. maí 2013 09:00 Mynd/AP
Oklahoma City og Chicago Bulls eru bæði úr leik í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta eftir að hafa tapað rimmum sínum 4-1. Miami vann Chicago, 94-91, þar sem Dwyane Wade fór á kostum þrátt fyrir að hafa átt í vandræðum með hnéð sitt. Hann skoraði átján stig og var lykilmaður í viðsnúningi leiksins er Miami náði að komast í forystu eftir að hafa verið mest ellefu stigum undir í seinni hálfleik. Leikurinn var kaflaskiptur en Miami kláraði leikinn með frábærum fjórða leikhluta. LeBron James skoraði 23 stig og gerði sitt, eins og vanalega. Chicago fékk tækifæri til að tryggja sér framlengingu en þeir Nate Robinson og Jimmy Butler klikkuðu báðir á þriggja stiga skoti í lokasókn sinni í leiknum. Carlos Boozer skoraði 24 stig fyrir Chicago og var með fjórtán stig. Derrick Rose var ekki með og þetta var 99. leikurinn í röð þar sem að hann er fjarverandi. Memphis komst áfram í úrslit Vesturdeildarinnar í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir sigur á Oklahoma City, 88-84. Zach Randolph var með 28 stig og fjórtán fráköst og Mike Conley bætti við þrettán stigum og ellefu stoðsendingum. Kevin Durant náði sér ekki á strik. Hann skoraði að vísu 21 stig en nýtti aðeins fimm af 21 skoti sínu utan af velli, þar af mikilvægu skoti þegar sex sekúndur voru eftir af leiknum. Það var lengi vel ljóst í hvað stefndi hjá Oklahoma City, besta liði Vesturdeildarinnar í vetur. Liðið saknaði Russell Westbrook sem meiddist í úrslitakeppninni. Oklahoma City vann aðeins tvo leiki af átta eftir meiðslin hans.
NBA Mest lesið Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Fannst látinn í hótelherbergi sínu Sport Hélt áfram að keppa þótt að kærastan lægi meðvitundarlaus í gólfinu Sport EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti Rekinn sextán mánuðum eftir skandalinn Formúla 1 „Heimskuleg spurning og dónaleg“ Fótbolti Landsliðsþjálfaranum létt og spenna í hópnum Sport „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fótbolti Landsliðskona tryggir sér 993 milljóna skósamning Fótbolti Ein stærsta stjarna NFL fær að heyra það: Þú ert feitur Sport Fleiri fréttir Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ Sjá meira