NBA: Indiana jafnaði metin á móti Miami Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. maí 2013 11:00 Leikmenn Indiana Pacers, Ian Mahinmi og Paul George, fagna hér í nótt. Mynd/NordicPhotos/Getty
Indiana Pacers vann meistarana í Miami Heat í Miami í nótt 97-93 og jafnaði þar með metin í úrslitaeinvígi Austurdeildarinnar í NBA-deildinni í körfubolta. Miami vann fyrsta leikinn í framlengingu en tapið í nótt var aðeins það fjórða í 50 leikjum hjá Miami-liðinu. Miami réð lítið við miðherjann Roy Hibbert inn í teig en hann var með 29 stig og 10 fráköst fyrir Indiana. "Við höfum ekki afrekað neitt ennþá. Við unnum bara einn leik og mörgum okkar finnst við eiga að vera 2-0 yfir," sagði Hibbert eftir leikinn. Paul George skoraði 22 stig, George Hill var með 18 stig og David West bætti við 13 stigum. LeBron James var langstigahæstur hjá Miami með 36 stig en hann tapaði boltanum tvisvar á lokamínútunni sem reyndist liðinu dýrkeypt. Indiana-liðið var 53-40 yfir þegar langt var liðið á annan leikhlutann en Miami minnkaði muninn í 53-47 fyrir hálfleik. Seinni hálfleikurinn var jafn en Miami virtist vera að snúa leiknum sér í vil í fjórða leikhlutanum. Indiana átti hinsvegar lokaorðið, vann lokamínúturnar 13-5 og tryggði sér sigur. Næsti leikur er í Indianapolis á morgun.
NBA Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Man. City verður meistari Sport „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Fleiri fréttir Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Sjá meira