Birgir Leifur og Valdís Þóra settu vallarmet Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. ágúst 2013 15:37
Birgir Leifur Hafþórsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar var sjóðheitur á Símamótinu sem fram fer á heimavelli hans, Leirdalsvelli. Birgir Leifur lék annan hringinn á mótinu á 64 höggum, eða sjö höggum undir pari, og bætti vallarmetið um þrjú högg. Birgir Leifur fékk átta fugla og einn skolla á hringnum góða og tók þar með forystu á Símamótinu. Birgir Leifur hefur tveggja högga forystu á Ólaf Björn Loftsson úr Nesklúbbnum sem enn á eftir að ljúka hringnum í dag. Stöðuna í karlaflokki má sjá hér. Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni var einnig í metagír í dag. Valdís Þóra setti vallarmet af bláum teigum þegar hún lauk keppni á 71 höggi eða pari vallarins.Valdís Þóra Jónsdóttir.Mynd/Stefán
Golf Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira