Sérmerktar gæðavetrarúlpur 31. október 2013 11:00 Elías Sigurðsson, sölustjóri Batik og Kristjana Rán Björnsdóttir sölufulltrúi. mynd/pjetur
Batik hefur yfir að ráða glæsilegu úrvali af úlpum og jökkum frá þýska gæðaframleiðandanum James & Nicholson. Fyrirtækið býr að áratuga reynslu í sérsaumi á merkingu með ísaumi, silkiprenti eða endurskini í flíkur. „Við bjóðum breiða línu fallegra yfirhafna frá þýska gæðaframleiðandanum James & Nicholson, en frá honum kemur sennilega fjölbreyttasta úrval yfirhafna sem þekkist frá einum og sama framleiðandanum,“ segir Elías Sigurðsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Batik ehf. Batik býður upp á glæsilegt úrval lífsstílsfatnaðar fyrir athafnasamt fólk, hvort sem það er til vinnu eða leiks; úti eða inni. „Allar yfirhafnir James & Nicholson fást í stærðunum small upp í 3XL og fást bæði í herra- og dömusniði. Úrvalið er allt frá léttum „softshell“-jökkum upp í hlýjar og þykkar „parka“-úlpur. Hægt er að velja um allt að 35 liti af sömu flíkinni og úrvalið er nær endalaust þegar kemur að ólíku sniði og útliti,“ upplýsir Elías. Batik hefur áratuga reynslu í merkingum á fatnaði, ísaumi og silkiprenti, sem þýðir að viðskiptavinir geta fengið úlpur sínar sérmerktar með nöfnum eða merkjum að eigin ósk. „Yfirhafnir James & Nicholson eru ómerktar og það kunna margir vel að meta. Það er sérstaklega vinsælt meðal fyrirtækja og félagasamtaka sem vilja síður láta áberandi vörumerki skyggja á merki fyrirtækisins. Möguleikar í merkingu eru ótæmandi,“ segir Elías. Batik er með verslun og sýningarsal að Bíldshöfða 16. Skoðið vöruúrvalið á batik.is.
Mest lesið Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent „Biðin er dýrust“ Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Viðskipti innlent Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Viðskipti innlent Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Viðskipti innlent Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Methagnaður norska olíusjóðsins Viðskipti erlent Fleiri fréttir Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira