Þori alveg að segja að ég ætla að vinna riðilinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. ágúst 2013 07:30 Hlynur Bæringsson er rosalega mikilvægur fyrir íslenska landsliðið og áhrif hans innan liðsins fara ekki fram hjá neinum. Mynd/Daníel
Tíu leikir á einum mánuði, ferðalög fram og til baka út um alla Evrópu og lítill möguleiki á að komast áfram. Síðasta haust sat í íslensku landsliðsmönnunum en nú er allt annað upp á teningnum. Hafi íslenska körfuboltalandsliðið átt einhvern tímann raunhæfa möguleika á að komast á EM þá er það núna. „Möguleikinn á að komast inn á EM hefur verið frekar lítill í gegnum tíðina ef hann hefur verið einhver. Við teljum okkur fá gott tækifæri núna á móti þessum liðum,“ segir Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska liðsins. Ísland er í riðli með Búlgaríu og Rúmeníu og efsta liðið kemst í fjögurra liða úrslitakeppni. Þar er spilað heima og heiman í undanúrslitum og úrslitum og sigurvegarinn verður meðal 24 þjóða á EM í Úkraínu árið 2015. „Maður leyfir sér alltaf að vona. Við eigum tvo síðustu leikina á heimavelli og mitt takmark er því að vera í góðum „sjens“ með að geta klárað þetta hérna heima,“ segir Hlynur en bætir svo við:Ætlar að vinna riðilinn „Takmarkið hjá mér er að vinna þennan riðil og ég þori alveg að segja það. Það er bara þannig. Auðvitað eru þetta góð lið og við þurfum að eiga virkilega góða leiki en það verður bara að gerast,“ segir Hlynur. Landsliðið hefur verið á miklu skriði og er búið að vinna fjóra leiki í röð, tvo á vináttumóti í Kína (Svartfjallaland og Makedónía) og svo tvo vináttulandsleiki við Dani.Mynd/DaníelStaðan á Jóni Arnóri Jón Arnór Stefánsson gat ekki spilað á mótinu í Kína og var ekki kominn í sitt allra besta form á móti Dönum. „Við erum búnir að fá Hörð Axel aftur inn síðan í fyrra og hann á eftir að vera með stórt hlutverk. Jón er okkar besti leikmaður og verður að eiga góða leiki ef við ætlum að fara áfram. Ég held að við lifum það alveg af þótt að hann sé ekki alveg hundrað prósent,“ segir Hlynur. „Við ætlum að fara í alla leiki til að vinna þá. Búlgarar eru taldir sterkastir en það þýðir ekki að við löbbum yfir Rúmeníu. Búlgaríuleikurinn er algjör lykilleikur fyrir okkur og hann má ekki fara illa. Við verðum eiginlega að vinna hann en hann má alls ekki fara illa því þá setjum við okkur í holu,“ segir Hlynur. Hann fagnar tækifærinu til að fá að spila landsleiki en liðið spilaði ekki leik árið 2010. „Það er gaman að fá verkefni það hefði ekki verið skemmtilegt ef það hefði ekkert verkefni verið. Það er aldeilis gulrót ef allt gengur upp en það er ansi langt í það enn þá,“ segir Hlynur. Liðið sem vinnur riðilinn mætir sigurvegara úr C-riðli en þar leika Danmörk, Sviss, Austurríki og Lúxemborg.Mynd/DaníelTvíeggjað sverð Hlynur er sjálfur í rosaformi og sýndi það meðal annars með frábærri frammistöðu á móti Dönum. „Mér hefur gengið mjög vel og ég þekki þetta kerfi ákaflega vel. Ég pikka upp stig hér og þar með því að kunna kerfið og það hjálpar mér mjög mikið. Það er tvíeggjað sverð að vera alltaf á móti þessum stóru slánum. Það er hægt að nota ýmislegt á móti þeim og ég er oft töluvert sneggri heldur en þeir. Ég reyni að nýta mér það í þessum landsleikjum. Fæstir af þeim eru mjög hrifnir af því að hreyfa lappirnar en vilja bara vera inni í teignum og passa körfuna,“ segir Hlynur. Hann hefur mikla trú á leikkerfi sænska þjálfarans Peters Öqvist. „Við verðum að vera með gott kerfi til þess að geta tæklað okkar veikleika. Það hjálpar lítið að væla yfir því að við séum eitthvað minni. Þegar við erum með djöfulgang og læti þá getum við núllað það út að einhverju leyti. Við reynum að gera okkar veikleika að styrkleika,“ segir Hlynur.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Fleiri fréttir Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Sjá meira