Sannleikurinn: Þetta hefði getað verið ég sem missti vinnuna í dag Andri Þór Sturluson skrifar 27. nóvember 2013 16:04 Rétt slapp við niðurskurðarhnífinn.
Starfsmenn RÚV sem misstu vinnuna í dag voru boðaðir einn og einn í senn uppá 5. hæð til að taka á móti jólagjöfinni sinni í ár frá útvarpstjóra. Einn starfsmaður RÚV sem ekki var sagt upp segir að dagurinn hafi verið gríðarlega erfiður fyrir alla en það var óvissan um hvort maður héldi starfinu eða yrði kallaðu upp til föður síns til að taka á móti uppsagnarbréfi sínu sem var verst. Edda Sif Pálsdóttir, íþróttafréttamaður á RÚV og dóttir Páls Magnússonar útvarpstjóra, segir að andrúmsloftið á fréttastofunni hefði verið „lamað“. „Einn af öðrum voru starfsmennirnir kallaðir upp og maður beið milli vonar og ótta eftir því hvort nafnið manns kæmi næst,“ segir Edda sem slapp blessunarlega frá niðurskurðinum vegna hæfni sinnar.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu já, við erum svona mikil fífl.
Harmageddon Mest lesið Margir miðlar staðfesta að skítugt fólk sé hættulegt Harmageddon Vildi ekki að persónulegir brestir vörpuðu skugga á störf Pírata Harmageddon Dagskrá Nordic Playlist Radio Bar heldur áfram í dag Harmageddon Mumford And Sons hættir? Harmageddon Bangsahommahátíð í Reykjavík Harmageddon Vill að forystan axli ábyrgð og segi af sér Harmageddon Fimm bestu Abba-lögin Harmageddon Sannleikurinn: Sminkurnar á Stöð 2 að gefast upp á Loga Bergmann Harmageddon Sannleikurinn: ASÍ - Launþegar 14:17 Harmageddon Gera á torgum það sem nasistar hefðu reynt að fela Harmageddon