NBA í nótt: Paul var hetja Clippers | Myndband Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. apríl 2013 09:01 Áhorfendur fagna eftir sigurkörfu Chris Paul í nótt. Mynd/AP
Chris Paul skoraði sigrukörfu LA Clippers gegn Memphis á lokasekúndu annars leik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Clippers er þar með komið með 2-0 forystu í einvíginu. Clippers vann tveggja stiga sigur, 93-91, en sigurinn var þó ekki tryggður fyrr en að dómarar staðfestu, eftir að hafa skoðað myndbandsupptökur, að Paul hefði skorað körfuna áður en leiktíminn rann út. Svo reyndist vera en 0,1 sekúnda var eftir á klukkunni þegar boltinn fór í körfuna. Það var ekki nægur tími fyrir Memphis að koma skoti að körfunni. Myndband af sigurkörfunni má sjá hér neðst í fréttinni. Paul var með 24 stig og níu stoðsendingar en Blake Griffin var með 21 stig og átta fráköst. Paul var sérstaklega öflugur á lokakaflanum en hann skoraði til að mynda átta stig í röð undir lok leiksins. Mike Conley skoraði 28 stig fyrir Memphis, þar af tíu í fjórða leikhlutanum. Einn annar leikur fór fram í úrslitakeppninni í nótt. Chicago vann Brooklyn, 90-82, og jafnaði þar með metin í 1-1 í rimmu liðanna. Carlos Boozer var með þrettán stig og tólf fráköst og Joakim Noah harkaði af sér meiðsli og setti niður mikilvægar körfur í fjórða leikhluta. Brook Lopez var með 21 stig fyrir Brooklyn en skotnýting liðsins var slæm í nótt, sérstaklega utan þriggja stiga línunnar þar sem liðið nýtti fjögur af 21 skoti sínu. Næsti leikur fer fram í Chicago.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Fleiri fréttir Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Sjá meira