Býr til metnaðarfullt tímarit fyrir krakka Álfrún Pálsdóttir skrifar 13. júní 2013 09:00 Guðbjörg Gissurardóttir ritstýrir nýja tímaritinu Krakkalakkar. Fréttablaðið/Valli „
Það hefur ekki verið gefið út blað fyrir krakka í næstum 20 ár eða síðan Æskan lagði upp laupana,“ segir Guðbjörg Gissurardóttir, ritstjóri og útgefandi tímaritsins Krakkalakkar sem ætlað er börnum. Fyrsta tölublaðið af Krakkalökkum kemur út í byrjun júlí og verða þær Eva Þorgeirsdóttir aðstoðarritstjóri og Erla Björg Gunnarsdóttir einnig starfandi á blaðinu. Tímaritið er ætlað börnum á aldursbilinu 6-12 ára og verður án allra auglýsinga. „Við lítum ekki þennan hóp sem markhóp auglýsenda. Fyrsta tölublaðið er tilraunaeintak svo við sjáum hvernig þetta leggst í lesendur,“ segir Guðbjörg sem hefur þess í stað leitað óhefðbundinna leiða til að fjármagna útgáfuna. „Við höfum komið upp Karolina fund-síðu þar sem hægt er að forkaupa blaðið. Þá sjáum við hvaða peningur er að koma inn. Vonandi verður svo hægt að gefa út blaðið þrisvar til fjórum sinnum á ári í framhaldinu.“ Efnistök blaðsins eru barnamenning og náttúran, að sögn Guðbjargar, sem og að tengja íslenska krakka við íslenskan veruleika. „Við viljum að efnið verði hvatning fyrir íslenska krakka,“ segir Guðbjörg, sem kvíðir ekki fyrir samkeppninni við snjallsíma og spjaldtölvur. „Blaðið er hugsað sem mótvægi við það allt saman þó að við fjöllum kannski eitthvað um svoleiðis tækni í blaðinu.“Hér má nálgast Karolina fund síðu Krakkalakka
Mest lesið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið Fleiri fréttir Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka Sjá meira