Engin kona í efnahags- og viðskiptanefnd þingsins. Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 8. júní 2013 13:09 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Forsætisráðherra segir að ef að menn vilji sjá jafnara hlutfall kynja í nefndum þá þurfi að breyta fyrirkomulaginu á því hvernig kosið er í nefndir. Engin kona situr í efnahags- og viðskiptanefnd þingsins. Konur eru í minnihluta í öllu nefndum Alþingis nema tveimur eftir að skipað var í nefndir þingsins í fyrradag. Kynjahlutföll eru ólík eftir málaflokkum en á meðan að engin kona situr í efnahags- og viðskiptanefnd sitja átta konur í velferðarnefnd og einn karl. Þetta hefur verið gagnrýnt nokkuð. Í jafnréttislögum segir að við skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkisins og sveitarfélaga skuli gæta þess að hlutfall kynjanna sé sem jafnast og að hlutur hvors kyns sé ekki minni en 40% þegar um fleiri en þrjá fulltrúa sé að ræða. Gyða Margrét Pétursdóttir, aðjúnkt í kynjafræði við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, sagði í hádegisfréttum okkar í gær að óeðlilegt væri að Alþingi setji reglur um kynjahlutföll í nefndum og ráðum en hlíti þeim ekki sjálft. Svo virðist sem engar reglur gildi um skiptingu kynja í þingnefndir og það sé mjög undarlegt að hennar mati. Núna séu um 60% þingmanna karlmenn en 40% konur og því afsaki ekkert þá skiptingu sé í nefndir þingsins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, segir þetta ekki í fyrsta sinn sem að kynjaskipting í nefndir þingsins er ójöfn. „Auðvitað er miklu skemmtilegra að það sé góð blanda af fólki með ólíkar skoðanir, úr ólíkum áttum og af sitt hvoru kyni. En vegna þess hvernig kosið er í nefndir eða réttara sagt raðað á listana, það gerir það hver flokkur út af fyrir sig, þá getur þetta orðið niðurstaðan og er svo sem ekki í fyrsta skipti. Við höfum séð svipaða hluti gerast áður. Ef að menn vilja huga sérstaklega að því að það sé ákveðið hlutfall kynja í hverri nefnd fyrir sig þá munu menn þurfa að breyta þessu fyrirkomulagi,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Mest lesið Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Fleiri fréttir Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sjá meira