Iggy & The Stooges með endurkomu 25. apríl 2013 15:00 ber að ofan Iggy Pop, að sjálfsögðu ber að ofan, á Bluefest Byron Bay-tónlistarhátíðinni í Ástralíu fyrir skömmu.Nordicphotos/getty
Ready to Die er fyrsta hljóðversplatan sem kemur út undir nafninu Iggy & The Stooges síðan Raw Power leit dagsins ljós árið 1973, fyrir fjörutíu árum. Auk hins 66 ára forsprakka Iggy Pop spila á plötunni gítarleikarinn James Williamson og trommarinn Scott Asheton. Þeir spiluðu einnig á Raw Power en það er síðasta platan sem þessir þrír spiluðu á saman. Til að fylla í skarð bassaleikarans Ron Asheton, sem lést 2009, var fenginn Mike Watt. Iggy Pop stofnaði The Stooges í Detroit árið 1967 eftir að hann hafði farið á tónleika með The Doors og orðið yfir sig hrifinn. Iggy, sem heitir réttu nafni James Osterberg, fékk bræðurna Scott og Ron Asheton til liðs við sig og einnig bassaleikarann Dave Alexander og úr varð hljómsveitin The Stooges. Sveitin vakti fljótt athygli fyrir líflega sviðsframkomu, sérstaklega Iggy Pop. Hann kom alltaf fram ber að ofan og makaði jafnan steikum eða hnetusmjöri á líkama sinn, skar sjálfan sig með gleri og tók dýfu ofan í áhorfendaskarann. The Stooges gerði plötusamning við stórfyrirtækið Elektra árið 1968 og gaf út samnefnda plötu ári síðar. Platan fékk dræmar viðtökur þrátt fyrir að hafa að geyma lög á borð við 1969, I Wanna Be Your Dog og No Fun, sem eru öll orðin vel kunn í dag. Næsta plata á eftir, Funhouse, sem kom út 1970, fékk engu betri móttökur. Smám saman töpuðu meðlimir sveitarinnar sér í fíkniefnaneyslu, sér í lagi Iggy, og The Stooges lagði nánast upp laupana. David Bowie kom sveitinni á kortið á ný þegar hann tók upp þriðju plötuna, Raw Power. Þá hafði Dave Alexander helst úr lestinni og í staðinn kom James Williamson, en aftur tókst sveitinni ekki að slá í gegn. Fljótlega eftir það hætti The Stooges endanlega og Iggy Pop hóf vel heppnaðan sólóferil með aðstoð Bowies. Árið 2003 kom Iggy Pop, sem hafði áður slegið í gegn með lögum á borð við Lust for Life og The Passenger, öllum að óvörum og boðaði endurkomu The Stooges eftir um það bil þrjátíu ára hlé. Fékk hann bræðurna Ron og Scott aftur til liðs við sig en í þetta sinn hljóp Mike Watt í skarðið í staðinn fyrir Dave Alexander. Sveitin fór í tónleikaferð og er enn að. Til að mynda spilaði hún í Listasafni Íslands árið 2006, en tónleikarnir áttu upphaflega að vera í Laugardalshöllinni. Síðasta plata á undan Ready to Die kom út 2007, hét The Weirdness og var gefin út undir nafninu The Stooges. Hún hlaut misjafnar viðtökur en David Fricke hjá The Rolling Stone er sáttur við nýju plötuna og gefur henni þrjár og hálfa stjörnu. Hann segir hana hráa og kraftmikla með Iggy Pop í hörkuformi. freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Fleiri fréttir Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Sjá meira