Viðskipti innlent

Öryggi rafrænna auðkenna mikilvægt

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Rafræn skilríki veita hæsta öryggi.
Rafræn skilríki veita hæsta öryggi. Mynd/Síminn
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu þar em vakin er athygli á mikilvægi öryggis rafrænna auðkenna.

Rafræn skilríki eru sögð veita hæsta öryggi sem í boði er á Íslandi, en það er meðal annars fólgið í því að notendanöfn og lykilorð eru hvergi geymd miðlæg.

Í nýlegri skýrslu ráðgjafafyrirtækisins ADMON um mat á öryggi rafrænna auðkenna eru rafræn skilríki öruggasta rafræna auðkenningin sem í boði er hér á landi.

Fullgild rafræn skilríki eru gefin út undir Íslandsrót sem er í eigu ríkisins. Hægt er að nota skilríkin til auðkenningar hjá yfir 120 innlendum þjónustuaðilum og 40 erlendum auk þess sem hægt er að nota þau til undirritunar skjala.

Ráðuneytið hvetur þjónustuveitendur til að vera meðvitaðir um upplýsingaöryggi og með hvaða hætti þeir telja viðunandi að varðveita og veita rafrænan aðgang að persónutengjanlegum gögnum.

Fimm ár eru síðan almenn útgáfa á rafrænum skilríkjum hófst og tæp 90% Íslendinga 15 ára og eldri geta nýtt sér þau. Nýlega var farin að gefa skilríkin út í farsíma og fjölmargir þjónustuveitendur hafa sýnt þessari lausn aukinn áhuga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×