Rodman dreymir um að vinna friðarverðlaun Nóbels 3. júlí 2013 08:00 Rodman ætlar í frí með leiðtoga Norður-Kóreu.
Ein furðulegasta frétt síðari ára var þegar Dennis Rodman, fyrrum NBA-stjarna, fór til Norður-Kóreu með Harlem Globetrotters. Þar skemmti hann sér með Kim Jong-un, leiðtoga landsins. Eftir ferðina talaði Rodman mikið um það hversu mikill toppmaður Kim væri og þau ummæli féllu víða í grýttan jarðveg enda er ekki farið sérstaklega vel með þegna landsins. "Hann hefur ekki sprengt neitt og fólk segir að hann sé versti gaur í heimi. Eina sem ég veit er að hann vill ekki fara í stríð við Bandaríkin. Hann langar að tala um körfubolta við Obama en Obama vill ekki hringja í hann. Ég spyr Obama hvað sé að því að rífa upp símann? Það eru breyttir tímar. Koma svo, Obama. Réttu út höndina og heyrðu í Kim," segir Rodman í viðtali við Sports Illustrated. Rodman ætlar sér aftur til Norður-Kóreu í næsta mánuði. "Ég ætla bara að slappa af, spila körfubolta og kannski fara í frí með Kim og fjölskyldu." Rodman hefur þegar beðið Kim um að sleppa bandarískum fanga í landinu og hann ætlar að beita sér frekar í málum Norður-Kóreu og Bandaríkjanna. "Mitt markmið er að brjóta ísinn í samskiptum ríkjanna. Ég veit ekki hvernig staðan varð sú að ég, af öllum mönnum, þarf að standa í því. Það er ekki beint mitt starf að sjá til þess að Bandaríkjamenn séu öruggir. "Það er svarti maðurinn, Obama, sem á að sjá til þess. Ég get samt sagt ykkur það að ef ég verð ekki á topp þrjú listanum næst þegar gefin verða friðarverðlaun Nóbels þá er eitthvað mikið að."
NBA Mest lesið Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Íslenski boltinn Mæta „reyndari og erfiðari“ andstæðingum í búrinu í Framheimilinu Sport Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Enski boltinn Með móral eftir djammið og sendu þýfið á ÓL Sport Fleiri fréttir Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Segir Grikkjanum haldið í gíslingu Fórnuðu Luka Doncic fyrir hann en Davis náði aðeins að spila 31 leik „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ „Þá er þetta munurinn á liðunum“ Uppgjörið: Tindastóll - Grindavík 74-99 | Grindavík eltir Keflavík í úrslit Martin með ellefu stig í magnaðri endurkomu Alba Berlin Uppgjörið: Keflavík - Hamar/Þór 82-77 | Keflvíkingar í bikarúrslit Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið „Við þekkjum umhverfið allavega betur“ James Harden skipt til Cleveland og titillíkur Cavaliers aukast „Vitum hvernig Stjarnan spilar“ Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik KR - Tindastóll 85-87 | KR-ingar í úrslit eftir háspennu „Byrjunin verður gríðarlega mikilvæg“ „Þeir setja pressu á alla og gera allt óþægilegt“ KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Stólarnir fóru bara allir í fýlu saman og það er óafsakanlegt Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Martin fagnaði mikilvægum sigri eftir mistök toppliðsins LeBron James valinn í Stjörnuleikinn 22. árið í röð Finni á Krókinn og Þór skiptir um Kana Efins um Pargo-skiptin: „Held að þetta sé ekki rétt hjá þeim“ Ekkert lát á sigurgöngu Tryggva og félaga Paul George dæmdur í 25 leikja bann Sparkaði í og trampaði á mótherja Pargo snýr aftur og klárar tímabilið með Grindavík Uppgjörið: Þór Þ - Keflavík 78 - 98 | Keflavíkurhraðlestin brunaði heim með öll stigin Shabazz látinn fara frá Grindavík Sjá meira