Kanadísk fyrirsæta sakar Kanye um framhjáhald Kristjana Arnarsdóttir skrifar 12. júní 2013 12:45 Kanadíska fyrirsætan Layla Ghobadi segist hafa sofið hjá Kanye West.
Kanye West á að hafa haldið framhjá óléttri Kim Kardashian með kanadískri fyrirsætu eftir tónleika rapparans í fyrrasumar. Hin 24 ára fyrirsæta, Leyla Ghobadi, sagði við tímaritið America‘s Star að fundir þeirra Kanye hefðu byrjað í júlí í fyrra. Fundirnir hefðu svo haldið áfram, þrátt fyrir að Kim og Kanye ættu von á frumburði sínum. Slúðurmiðlarnir vestanhafs höfðu lengi vel velt sambandi þeirra Kim og Kanye fyrir sér, en rapparinn gaf það út að sambandið væri alls ekki gert fyrir fjölmiðlana eða sem einhverskonar auglýsing. Þau væru ástfangin. „Þetta á algjörlega eftir að eyðileggja Kardashian-fjölskylduna. Þetta er slæmt, mjög slæmt. Þetta er bara vandræðalegt. En ef ég væri í sporum Kim, með barn á leiðinni, myndi ég vilja vita þetta,“ er haft eftir fyrirsætunni. Heimildamenn Kim þvertaka fyrir að nokkuð sé satt í þessum efnum en heimildamenn Kanye hafa ekkert gefið frá sér enn. Sagan segir að Kanye hafi fyrst komið auga á kanadísku fyrirsætuna meðal áhorfenda á tónleikum sínum í Atlantic City í fyrra. Hann hafi þá beðið starfsmann sinn um að finna stúlkuna og bjóða henni að hitta sig baksviðs, þrátt fyrir að Kim væri einnig viðstödd tónleikana. Kanye á þá að hafa boðið Leylu út í drykki og þaðan upp á hótelherbergi sitt. Það kvöld hafi Leyla neitað að fara heim með rapparanum en hann þá tekið sig til og boðið fyrirsætunni og vinkonum hennar á tónleika sína kvöldið eftir. Hann gaf þeim öllum baksviðspassa og sagði við Leylu að samband hans og Kim væri ekkert nema fjölmiðlabrella. Leyla fór því með Kanye upp á hótelhergi hans. „Við kysstumst í smá stund. Allt í einu vorum við bæði nakin og farin að stunda kynlíf,“ segir Leyla. Næsti fundur þeirra Leylu og Kanye var í New York í október en þá var Kim stödd í Miami og hafði á þeim tímapunkti ekki tilkynnt um óléttuna. Leyla segir Kanye hafa haft samband við sig um síðustu helgi en fyrirsætan þá þvertekið fyrir að hitta hann, þar sem hún væri meðvituð um að parið ætti von á barni.
Mest lesið Ísland í neðsta og næstneðsta sæti hjá Ísraelum Lífið „Grínast oft með að ég gaf honum um ellefu ár til að hætta við“ Lífið Máli Baldoni vísað frá Lífið Að eiturefnum sé dreift úr flugvélum yfir fólk Lífið „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Menning Nefndirnar sem smíða orðin: Lýðnetið víkur fyrir internetinu og þjarki fyrir bóta Lífið Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Bíó og sjónvarp „Strákar verða að sýna tilfinningar“ Lífið Dekurbossinn Hjalti: „Mömmur eru einfaldlega bestar og mín var ein sú allra besta“ Áskorun Af hverju er hvítasunnan haldin hátíðleg? Lífið Fleiri fréttir Máli Baldoni vísað frá Ísland í neðsta og næstneðsta sæti hjá Ísraelum Nefndirnar sem smíða orðin: Lýðnetið víkur fyrir internetinu og þjarki fyrir bóta Að eiturefnum sé dreift úr flugvélum yfir fólk „Strákar verða að sýna tilfinningar“ „Grínast oft með að ég gaf honum um ellefu ár til að hætta við“ Af hverju er hvítasunnan haldin hátíðleg? „Ertu kannski Íslendingur?“ Brúnkukrems- og karókíkvöld á dagskrá kvenfanga Krakkatían: Aldur, tími og Greta Thunberg Söfnuðu milljón krónum fyrir ungt fólk með krabbamein Fékk sér Stöð 2 húðflúr í beinni útsendingu Vann gullverðlaun fyrir sykurblómaskreytingu Vala Kristín og Hilmir Snær búin að eiga Laufey Lín og Barbra Streisand leiða saman hesta sína Stuð og stemning á „árshátíð íslenskra þungarokkara“ í Stykkishólmi Þjóðhátíð um raunveruleikaþátt Brynjars: „Það er ekkert í boði“ Fréttatía vikunnar: Trump, Parkinson og fótbolti Hélt við konu besta vinar síns Ríkissáttasemjari selur glæsihús undir dönskum áhrifum Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Mátti eiginlega ekki hósta því þá myndi hann kremja hann Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Brynjar skiptir Aroni út Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Sjá meira