Harmageddon

Sannleikurinn: Íþróttamaður ársins vann sinn fyrsta titil í ár þegar hann var valinn íþróttamaður ársins

Dómnefndin náði að forða því að verðlaunin yrðu gjaldfelld með vali á einhverri stelpu sem veit ekki einu sinni hvað rangstaða er.
Dómnefndin náði að forða því að verðlaunin yrðu gjaldfelld með vali á einhverri stelpu sem veit ekki einu sinni hvað rangstaða er.
Gylfi Þór Sigurðsson vann til sinna fyrstu verðlauna á árinu í gær þegar hann var valinn íþróttamaður ársins.

Gylfi náði næstum því árangri með íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu ásamt öðrum og spilar með liði í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Einhver kona varð í öðru sæti en auk þess að verða heims- og Evrópumeistari getur hún bætt titlinum næstbesti íþróttamaður ársins 2013 á ferilskrána.



Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu þar sem val á Facebookvini ársins stendur nú yfir.








×