16 strokka Rolls Royce 23. febrúar 2013 11:00 Rolls Royce Phantom, sem gæti eignast stærri bróðir
Rolls Royce er einnig að hugleiða smíði jeppa. Ekki eru allir bílaframleiðendur með hugann við að smækka vélarnar í bíla sína. Á teikniborðinu hjá Rolls Royce er nýr blæjubíll sem bílatímaritið Car segir að verði með samskonar vél og er í Bugatti Veyron og er 16 strokkar. Hún yrði þó ekki eins öflug, en skilaði samt 700 hestöflum. Vélin styðst ekki við túrbínu eða hverfilblásara. Vegna stærðar hennar verður húddið á bílnum lengra en í flestum Rolls Royce bílum og farþegarýmið ýtist fyrir vikið aftur. Þessi bíll yrði fyrst til sölu árið 2017, ef á annað borð verður af smíði hans. Í fljótu bragði má telja að ekki sé svigrúm fyrir svo stóra og þar af leiðandi mengandi vél í lögum þeim sem krefja bílaframleiðendur til að minnka útblástur bíla sinna. Rolls Royce er víst einnig að hugleiða smíði á jeppa og ef af stærsti samkeppnisaðilinn, Bentley mun láta verða af áformum sínum um smíði jeppa aukast líkurnar á að það verði.
Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Innlent Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Erlent Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Erlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent