Arftaki Ferrari Enzo 18. febrúar 2013 15:45 Ekki eru enn komnar myndir af bílnum öllum, aðeins nokkrar stríðnimyndir frá Ferrari
Verður framleiddur í 499 eintökum og er yfir 900 hestöfl. Næsti framleiðslubíll frá Ferrari mun kosta eina milljón Evrur en sá bíll á að leysa af hólmi Ferrari Enzo. Aðeins verða framleiddir 499 bílar af þessari gerð, eða 100 fleiri eintök en af Enzo bílnum. Framleidd verða fleiri eintök til að svara síaukinni eftirspurn í Asíu, aðallega frá Kína. Bíllinn er víst þegar uppseldur. Þegar sala Enzo hófst árið 2002 kostaði hann 665.000 Evrur en gengur nú kaupum og sölum á meira en 1 milljón Evra. Nýi bíllinn hefur vinnuheitið F150. Fiat, eigandi Ferrari hefur ekki í hyggju að birta myndir af þessum nýja bíl í heild sinni en hefur engu að síður birt tvær "teaser"- myndir af honum í eigin tímariti Ferrari. Heimildir herma að nýi bíllinn sé yfir 900 hestöfl sem koma frá V12 vél og rafmótorum og er hann því tvinnbíll (Hybrid). Fyrir vikið er hann 40% eyðslugrennri en Ferrari Enzo. Hann verður 5,5 sekúndur í 200 kílómetra hraða. Yfirbygging hans verður úr koltrefjum og í heild vegur bíllinn 1.365 kíló. Hybrid kerfið í bílnum vegur 150 kíló. Undirvagn þessa nýja bíls verður smíðaður á sama stað og Formúlu eitt bílar Ferrari eru smíðaðir. Í fyrra seldi Ferrari 7.318 bíla og jók söluna um 5% milli ára. Hagnaður óx um 12% og nam 45 milljörðum króna, sem var 14,4% af veltu.
Mest lesið Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Innlent Hótuðu að loka Vogi Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Tuttugu lögðu ólöglega Innlent Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Innlent Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Innlent Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Erlent