Bílar

Bannað að fá skráningarnúmerið GAYGUY

Skráningarnúmerin JESUS4U og HATERS leyfð.

James Cyrus Gilbert III, sem er samkynhneigður, hefur verið neitað um skráningarnúmerið GAYGUY á bíl sinn í Georgíufylki í Bandaríkjunum. Hann hefur einnig sótt um skráningarnúmerin 4GAYLIB og GAYPWR en einnig verið neitað um þau.

Því hefur hann farið í mál við Georgia Department of Driver Services á grundvelli þess að tjáningarfrelsi hans sé heft með neitun stofnunarinnar. Í lögum í Georgíu varðandi skráningarplötur á bílum kveður á um bann við blótsyrðum, orðfæri sem sært gæti blygðunarkennd fólks eða hæðir fólk. Einnig er bann við trúarlegum skilaboðum, kynþáttar- eða þjóðernistengdum skilaboðum sem og hégómlegum.

Engu að síður hafa skráningarplötur eins og HATERS, BLKBUTI og JESUS4U fengist skráð og er á það bent með kærunni sem James hefur lagt fram. Yfirvöld í Georgíufylki hafa viðurkennt að erfitt sé að fylgja þeim lögum sem um skráningarnúmerin gilda og mikið ósamræmi sé á túlkun þeirra og að ógerningur sé að gæta sjónarmiða hlutleysis.

Í því ljósi er ólíklegt að stofnunin vinni málið og því er líklegt að James geti brátt ekið um götur fylkisins með skráningarnúmerið GAYGUY.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×