Bílar

Nýr Kia til höfuðs Nissan Juke

Lofar góðu af myndum að dæma
Lofar góðu af myndum að dæma
Verður kynntur á bílasýningunni í Genf í mars.

Kia mun kynna nýjan og sportlegan bíl á bílasýningunni í Genf í byrjun mars og lofa myndir af honum góðu. Kia hefur sjálft látið þær í té svona til auka aðeins spennuna fyrir honum. Þessum bíl er meðal annars ætlað það hlutverk að keppa við Nissan Juke jepplinginn og er ekki ósvipað form á þeim tveimur.

Bíllinn virðist liggja einhversstaðar á milli stallbaks og jepplings og útlitið hans er skemmtilega djarft og framsækið. Fleiri upplýsingar um bílinn, svo sem um vélbúnað, liggja ekki fyrir og bíður sýningarinnar í Genf. Á myndunum að dæma er enginn B-póstur í bílnum fyrir aftan hurðirnar og afar smár gluggi þar fyrir aftan, eins og títt er með sportbíla.

Afturendi bílsins er ári bólginn kringum afturhjólin og skottlínan há. Grillið á bílnum er talsvert frábrugðið öðrum Kia bílum. Nýrnalaga formið heldur sér þó en er mjög teygt og mjótt. Í heildina má segja að erfitt sé að greina að þetta sé bíll frá Kia, en gefur ef til vill tóninn um það sem frá kóreska framleiðandanum kemur á næstunni. Það væri ekki til tjóns ef marka má myndirnar.


Hár afturendi og lítill hliðar- og afturgluggi
Örmjótt grill en heldur samt nýrnaforminu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×