Íslenskur drykkur gegn timburmönnum 4. maí 2013 16:00 Vinnur gegn þynnku Sigurður Haukur Traustason framleiðir drykkina B.Okay sem vinna gegn timburmönnum. Drykkirnir fást í tveimur bragðtegundum; bláberja og mangó og svo sítrónubragði. Fréttablaðið/stefán „
Við höfðum áður unnið innan matvælageirans og þekktum því umhverfið og möguleikana. Hugmyndin að drykknum kom upp eftir skemmtilegt kvöld í bænum. Okkur fannst skrítið að svona vara væri ekki í boði og í kjölfarið ákváðum við að búa til sérhæfða blöndu sem gæti virkað gegn þynnku. Við fórum í samstarf við efnasérfræðinga í Þýskalandi og næringarfræðinga á Íslandi og úr varð þessi drykkur,“ útskýrir Sigurður Haukur Traustason sem rekur fyrirtækið B.Okay ásamt Björgvin Sólberg og Tómasi Þórssyni. Fyrirtækið framleiðir drykki sem eiga að draga úr timburmönnum. Sigurður Haukur segir drykkinn ekki vera töfralausn gegn þynnku en segir hann innihalda vatnsleysanleg vítamín, einstök steinefni, aminósýrur og önnur efni sem tapast úr líkamanum eftir áfengisneyslu. „Við fengum 250 manns til að prófa drykkinn síðasta sumar og viðbrögðin voru það góð að við ákváðum að halda vinnunni áfram. Byrjunin lofar mjög góðu og við teljum okkur vera með frábæra og holla vöru.“ Fjöldi húsráða eru til gegn þynnku og lumaði Sigurður Haukur á einu slíku áður en B.Okay leit dagsins ljós. „Maður keypti oft sterkar B-vítamín töflur til að taka inn. Svo hefur maður heyrt allskonar þynnkuráð í gegnum tíðina; taka inn Treo, borða sveittan hamborgara og drekka sportdrykki eða vatn. Af þessu var vatn besta þynnkuráðið,“ segir hann. B.Okay verður fáanlegt í verslunum 10-11 frá og með miðjum maí. „Við byrjum á þessu og sjáum svo hvað setur. Við viljum heyra hvað fólki finnst um vöruna og halda áfram að þróa hana og bæta. Við sem komum að þessu erum draumóramenn og því ekki útilokað að við reynum við erlenda markaði síðar.“ sara@frettabladid.is
Mest lesið Lést af völdum alnæmis Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Lífið Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Lífið Í jólaskapi í júní Menning Fleiri fréttir Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Sjá meira
Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Lífið
Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Lífið