Allir GM bílar 4G nettengdir 25. febrúar 2013 11:00 Chevrolet Cruze verður væntanlega kominn með 4G tengingu í 2015 árgerðinni
Audi ætlar að bjóða 4G tengingu í A3 bílinn strax í ár. General Motors veðjar svo sterklega á kröfu bíleigenda um nettengingu í bílnum að það ætlar að útbúa svo til alla bíla sína þannig frá og með árinu 2015. Verða bílarnir með háhraða 4G nettengingu og ætlar GM að bindast samstarfi við AT&T símafyrirtækið til að gera þetta mögulegt. Þó byrjað verði á heimavelli mun GM á endanum mun bjóða nettengingu fyrir bíla sína á öllum markaðssvæðum heimsins. Með þessari nýju tækni þarf ökumaður ekki neinn síma, hvorki eigin snjallsíma né innbyggðan síma í bílnum og ætti það að vera góðar fréttir hvað umferðaröryggi varðar. Annar kosturinn við slíka háhraðatengingu í bílinn er að hægt verður að uppfæra hugbúnaðinn sem upplýsinga- og afþreyingarbúnaður bílsins byggir á, en hann á nú til að úreldast hratt. Kemur það sér sérlega vel fyrir uppfærslu leiðsögukerfa. GM er ekki eina bílafyrirtækið sem ætlar að setja 4G tengingu í bíla sína en Audi verður með slíka tengingu í A3 bílum sínum strax á þessu ári fyrir bæði Evrópu- og Bandaríkjamarkað. Á síðasta ári bauð Mercedes Benz 3G tengingu fyrir marga af sínum bílum og Chrysler einnig fyrir 3 af bílgerðum sínum. Með þessu nýja kerfi GM gæfist farþegum í aftursæti möguleiki á að streyma efni til samtíma áhorfs á þar til gerðum skjám. Brátt verður bíllinn orðinn eins og bíósalur, eða allir verða á internetinu, nema vonandi bílstjórinn.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent