Aðgengi óskast Sigríður Hafdís Runólfsdóttir skrifar 2. apríl 2012 06:00 Fötlun setur vissulega mörgum skorður við að sinna sjálfsögðum þáttum daglegs lífs, svo sem við að sinna atvinnu, námi og félagslífi. Á árum áður var algengara að fatlað fólk byggi við vissa einangrun vegna sinnar fötlunar, sem stafaði oft af hindrunum í samfélaginu og erfiðleikum við að komast á milli staða. Umhverfið gerði hreinlega ekki ráð fyrir fötluðu fólki. Ein af meginreglum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólk er að fatlað fólk geti tekið fullan þátt í samfélaginu án aðgreiningar. Í níundu grein samningsins segir að leitast skuli við að tryggja fötluðu fólki aðgang að hinu efnislega umhverfi, samgöngum, upplýsingum, samskiptum, aðstöðu og þjónustu sem almenningi er látin í té. Gera skuli ráðstafanir sem meðal annars felast í því að ryðja úr vegi hindrunum sem hefta aðgengi í hinu manngerða umhverfi. Ný byggingarreglugerð sem undirrituð var fyrir skemmstu byggir á lögum um mannvirki sem samþykkt voru í lok árs 2010. Eitt af markmiðum reglugerðarinnar og laganna er að tryggja aðgengi fyrir alla. Í því felst að fólki sé ekki mismunað um aðgengi og almenna notkun á mannvirkjum á grundvelli fötlunar, skerðingar eða veikinda. Um leið er gert ráð fyrir að fatlað fólk geti komist inn og út úr mannvirkjum á öruggan hátt, líka þegar hætta steðjar að svo sem við bruna. Algild hönnun er hugtak sem lýsir þeirri hugmyndafræði að hið manngerða umhverfi, þjónusta, áætlanir og framleiðsluvörur séu þannig gerð að hún henti öllum, án þess þó að útiloka hjálpartæki fyrir fatlað fólk sé þeirra þörf. Samkvæmt byggingarreglugerðinni skal ávallt leitast við að beita algildri hönnun þannig að byggingar og lóðir þeirra séu aðgengilegar öllum án sérstakrar aðstoðar. Gott aðgengi kemur sér vel fyrir alla og er ein af lykilforsendum þess að allir geti tekið virkan þátt í samfélaginu, hvort sem um er að ræða fatlað fólk, ófatlað, fólk með barnavagna, þungaðar konur eða eldri borgara. Öll getum við lent í því einhvern tímann yfir ævina að hlutir sem áður þóttu sjálfsagðir reynast okkur meiri hindrun en áður. Gera má ráð fyrir því að um 10% Íslendinga á aldrinum 18-66 ára búi við einhvers konar fatlanir eða um 31 þúsund manns. Við það bætist að margir eldri borgarar búa við ýmsar hamlanir þrátt fyrir góða heilsu og fer sá hópur sístækkandi. Það er því mikilvægt að að huga að aðgengi fyrir ólíka hópa þegar kemur að byggingu nýrra mannvirkja. Nýja byggingarreglugerðin tekur sérstakt tillit til ólíkra hópa með mismunandi þarfir fyrir aðgengi. Bætt aðgengi að mannvirkjum gerir það að verkum að líkamlegt ásigkomulag muni síður setja hömlur á daglegt líf og búsetu fólks. Nýrri byggingarreglugerð ber að fagna þar sem hún boðar bætt aðgengi fyrir alla og verður það seint ofmetið. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Það er flókið að eiga næstum 500 milljarða króna á Íslandi Þórður Snær Júlíusson Skoðun Níðingsverk Jón Daníelsson Skoðun Það er betra fyrir okkur öll að Háskóli Íslands efli fjarnám Darri Rafn Hólmarsson Skoðun Þegar rafmagn hættir að vera sjálfsagður hlutur Árni B. Möller Skoðun Æji nei innflytjendur Davíð Aron Routley Skoðun 5.maí Alþjóðadagur ljósmæðra Unnur Berglind Friðriksdóttir Skoðun Stríðsglæpir sem munu ekki gleymast! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Lýðræði og framtíð RÚV: Tími til breytinga? Erling Valur Ingason Skoðun Hættulegt tal Sjálfstæðisflokksins og Viðskiptaráðs Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Dvel þú í draumahöll Hugrún Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hættulegt tal Sjálfstæðisflokksins og Viðskiptaráðs Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Þetta má ekki gerast aftur! - Álag á útsvar Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Meistaragráða í lífsreynslu Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar Skoðun Stjórnvöld, Óskar á heima hér! Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Dvel þú í draumahöll Hugrún Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Níðingsverk Jón Daníelsson skrifar Skoðun Umhverfi, heilsa og skólamáltíðir Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Æji nei innflytjendur Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Stríðsglæpir sem munu ekki gleymast! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Samstaða, kjarkur og þor Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Það er betra fyrir okkur öll að Háskóli Íslands efli fjarnám Darri Rafn Hólmarsson skrifar Skoðun Yfirfull fangelsi, brostið kerfi Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Þegar rafmagn hættir að vera sjálfsagður hlutur Árni B. Möller skrifar Skoðun Það er flókið að eiga næstum 500 milljarða króna á Íslandi Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Lýðræði og framtíð RÚV: Tími til breytinga? Erling Valur Ingason skrifar Skoðun 5.maí Alþjóðadagur ljósmæðra Unnur Berglind Friðriksdóttir skrifar Skoðun Endurnýjun hugarfarsins Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Ferðamenn: Vanmetnir skattgreiðendur í íslensku hagkerfi Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Góð vísa... Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Við höfum ekki efni á tvískinnungi SFS Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað getum við lært af Víetnamstríðinu? Einar Magnússon skrifar Skoðun Góður rekstur Mosfellsbæjar og framtíðin björt Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir ,Lovísa Jónsdóttir skrifar Skoðun Fristund.is fyrir öll - líka eldra fólk Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem skeytir engu Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Áskorun til ráðherra mennta- og barnamála og ráðherra menningarmála Anna Klara Georgsdóttir skrifar Skoðun Fólkið sem gleymdist í Grindavík Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Rússar pyntuðu og myrtu úkraínsku blaðakonuna Viktoriiu Roshchyna Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Á að sameina ÍSÍ og UMFÍ? Ómar Stefánsson skrifar Skoðun Elsku ASÍ, bara… Nei Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Gigtarmaí 2025 – Stuðlum að forvörnum, fræðslu og vitundarvakningu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Góður rekstur Mosfellsbæjar og framtíðin björt Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir ,Lovísa Jónsdóttir skrifar
Skoðun Áskorun til ráðherra mennta- og barnamála og ráðherra menningarmála Anna Klara Georgsdóttir skrifar
Skoðun Rússar pyntuðu og myrtu úkraínsku blaðakonuna Viktoriiu Roshchyna Erlingur Erlingsson skrifar
Skoðun Gigtarmaí 2025 – Stuðlum að forvörnum, fræðslu og vitundarvakningu Hrönn Stefánsdóttir skrifar