Einhverfa – fjölgun greindra tilfella – af hverju efasemdir? Dr. Evald Sæmundsen skrifar 18. apríl 2012 06:00 Einhverfa verður til vegna röskunar í taugaþroska og er samansafn hegðunareinkenna sem birtast á mismunandi tímum eftir fæðingu. Af því að heilinn er í aðalhlutverki væri einnig hægt að segja að einhverfa feli í sér óvenjulega heilastarfsemi sem leiði af sér sérstaka skynjun og hegðun hjá fólki. Upphaflega var litið svo á að glögg skil væru á milli þess sem væri einhverfa og ekki einhverfa. Ein áhrifamesta breytingin á því hvernig við nálgumst og upplifum einhverfu er hins vegar færslan frá þessari svart-hvítu hugsun yfir í að einhverfa geti verið misalvarleg og að einkenni raði sér á einhvers konar vídd eða víddir. Í þeim skilningi geta einkenni verið mismunandi mörg og af mismunandi styrkleika sem aftur ræður alvarleika þeirra. Til að lýsa þessum breytileika er notað hugtakið einhverfuróf (sbr. litróf). Raskanir á einhverfurófi eru því mismunandi birtingarmyndir einhverfu. Einhverfa skýrist að mestu leyti út frá erfðum. Undanfarinn áratug hafa orðið gífurlegar framfarir í erfðafræði og fræðimenn þokast stöðugt nær því að skilgreina erfðabreytileika sem getur útskýrt hvers vegna einhverfa verður til. Á sama tíma hefur komið betur og betur í ljós að orsakir einhverfu eru margvíslegar, hvort sem litið er til erfða eða áhættuþátta. Algengi á Íslandi hefur vaxið úr 0,04% (einhverfa) um mitt ár 1976 í 1,2% (allar einhverfurófsraskanir) við lok árs 2009. Bak við fyrri töluna voru 19 börn fædd á 10 ára tímabili, en bak við þá síðari voru 267 börn fædd á fimm ára tímabili. Fyrstu rannsóknir á einhverfu gáfu til kynna að 70 til 80% einstaklinganna væru jafnframt með þroskahömlun og að 20 til 30% myndu greinast með flogaveiki einhvern tíma á lífsleiðinni. Það þýddi að aðeins lítill hluti hópsins næði að lifa sjálfstæðu lífi á fullorðinsárum. Samsetning hópsins í dag er hins vegar á þann veg að mun færri eru með þroskahömlun, færri fá flogaveiki, mun fleiri ljúka háskólanámi og fleiri ná að lifa sjálfstæðu lífi sem fullorðið fólk. Eftir því sem fleiri börn og unglingar greinast með einhverfurófsröskun og því eldri sem þau eru við greiningu, því fleiri eru talin með „vægara“ form einhverfu eins og ódæmigerða einhverfu eða Aspergers-heilkenni. Annað mikilvægt atriði sem vert er að skoða hjá þessum nýja hópi barna sem nú fær einhverfurófsgreiningu eru svokallaðar „fylgiraskanir“ sem ættu ef til vill frekar að kallast „meðraskanir“. Með því er átt við að auk einhverfurófsröskunar séu aðrar raskanir til staðar. Löng hefð er fyrir því að geta um þroskahömlun og málhömlun auk einhverfunnar. Hins vegar er tiltölulega nýlega farið að greina til viðbótar ADHD, Tourette-heilkenni, kvíða og þunglyndi svo eitthvað sé nefnt. Einnig var hluti þeirra meðraskana sem nefndar voru hér að framan eins og ADHD eða kvíði stundum talinn hluti af einhverfuástandinu og þar af leiðandi ekki tilefni til að geta þeirra sérstaklega í greiningarniðurstöðum. Hvað sem því líður, þá uppfyllir fjöldi barna með einhverfurófsröskun jafnframt greiningarskilmerki fyrir ADHD, eða um tveir þriðju samkvæmt nýlegri íslenskri rannsókn. Þá er viðbúið að kvíði sé vangreindur hjá þessum börnum og sömuleiðis vanmeðhöndlaður. Stór hluti hins nýja hóps sem nú fær einhverfurófsgreiningu er líklegur til að greinast seint. Ef algengi einhverfurófsraskana er að lágmarki 1,2% og fjöldi Íslendinga um 319.000 þá eru það hátt á fjórða þúsund manns. Á skrá Greiningar- og ráðgjafarstöðvar eru nú aðeins um þrettán hundruð einstaklingar með slíka greiningu. Hvar eru þá hinir? Ef þessi nýi hópur barna með einhverfurófsröskun, sem stendur tiltölulega vel þroskalega séð, hefur alltaf verið til, hvað erum við þá að býsnast? Er það ekki merki þess að þau hafi spjarað sig vel, kannski einmitt vegna þess að nútímagreiningarárátta hefur ekki náð að trufla líf þeirra? Það á vonandi við um marga, en alls ekki alla. Að minnsta kosti trúi ég því ekki fyrr en fullorðna fólkið með krónísku geðsjúkdómana hefur verið rannsakað. Það fær engin(n) fyrst geðklofa og síðan einhverfu! Aftur er vel hugsanlegt að hluti þeirra sem nú eru með geðklofa hafi verið með einhverfurófsröskun frá barnæsku án þess að hafa fengið greiningu. Ekki væri síður áhugavert að skoða tíðni einhverfueinkenna hjá öllum þeim Íslendingum sem nú eru með greiningu um persónuleikaröskun eða teljast geðfatlaðir og fá þjónustu sem slíkir. Þá liggur fyrir að umtalsverður hluti fullorðinna einstaklinga með þroskahömlun er jafnframt með einhverfu sem ekki hefur verið greind. Það eru engar vísbendingar um að algengi raskana á einhverfurófi fari lækkandi. Nú er sá tími runninn upp að ekki verður hjá því komist að horfast í augu við þá staðreynd að einhverfa er ekki sjaldgæf! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar