Innlent

Ólafur og Dorrit skoða mörgæsir

Ólafur Ragnar og Dorrit á Suðurskautinu.
Ólafur Ragnar og Dorrit á Suðurskautinu. Mynd/Vefur forsetaembættisins.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaief eru nú stödd á Suðurskautslandinu ásamt fríðu föruneyti. Á vef forsetaembættisins hefur þessi mynd nú verið birt sem sýnir Ólaf og Dorrit ásamt fjölda mörgæsa.

Forsetinn þáði boð frá Al Gore, Nóbelsverðlaunahafa og fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna og með í för eru menn á borð við kvikmyndaleikstjórann James Cameron og milljarðamæringana Richard Branson og Ted Turner.

„Markmið leiðangursins er að kanna hina hröðu bráðnun íss og ræða hvernig unnt er að fá þjóðir heims til að sameinast í raunhæfum aðgerðum gegn loftslagsbreytingum. Hann er skipulagður af Loftslagsstofnun Al Gore, the Climate Reality Project, og hinu heimsþekkta náttúrutímariti National Geographic," segir í tilkynningu frá forsetaembættinu.

Leiðangrinum lýkur á mánudaginn eftir viku en siglt er á könnunarskipinu National Geographic Explorer.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×