Tímamótasamstarf Guðbjartur Hannesson skrifar 19. nóvember 2012 06:00 Ísland er þekkt fyrir mikla atvinnuþátttöku þjóðarinnar sem er meiri en þekkist í nokkru öðru ríki innan OECD. Við viljum öll vinna sem getum og gerum það ef vinnu er að fá. Missi fólk vinnuna hefst leit að nýju starfi og á það þá rétt til atvinnuleysisbóta. Þær fela hins vegar ekki í sér neina lausn heldur eru aðeins tímabundið fjárhagslegt úrræði þar til úr rætist.Framlenging bótaréttar ekki varanleg lausn fyrir atvinnuleitendur Réttur til atvinnuleysisbóta var í kjölfar efnahagshrunsins framlengdur tímabundið úr þremur árum í fjögur. Um áramótin verður hann aftur þrjú ár. Mikið hefur verið rætt um hvernig bregðast eigi við þessum aðstæðum. Þrennt var í stöðunni; að gera ekkert – að framlengja aftur bótatímabilið – eða ráðast í aðgerðir til að skapa þeim sem í hlut eiga tækifæri til að komast aftur inn á vinnumarkaðinn. Frá 1. september síðastliðnum til loka næsta árs er áætlað að um 3.700 atvinnuleitendur fullnýti rétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Þetta er mikill fjöldi og ljóst að án aðgerða myndi stór hópur fólks ekki eiga annars úrkosta en sækja um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, endurhæfingarlífeyri eða örorkubætur. Enginn þessara kosta er góður, því fólk vill vinna ef það getur, vera virkt, fá laun fyrir framlag sitt og leggja af mörkum til samfélagsins. Ríki, sveitarfélög og aðilar vinnumarkaðarins hafa setið á rökstólum síðustu vikur og unnið sleitulaust að sameiginlegri og skynsamlegri niðurstöðu um hvað skuli gera í málefnum fólks sem hefur fullnýtt eða fullnýtir á næstunni rétt sinn til atvinnuleysisbóta. Niðurstaða liggur fyrir í sannkölluðu tímamótasamkomulagi. Atvinnuleysistryggingasjóður leggur til um 2,7 milljarða króna sem að stærstum hluta nýtist sem mótframlag til launa í sex mánuði fyrir um 2.200 starfstengd vinnumarkaðsúrræði sem almenni vinnumarkaðurinn, sveitarfélögin og ríkið skuldbinda sig til að bjóða.Endurhæfing Fengin reynsla sýnir að allt að 25% atvinnuleitenda geta ekki nýtt sér starfstengd vinnumarkaðsúrræði og þurfa á endurhæfingu að halda. Því er miðað við að um 900 manns fái atvinnutengda endurhæfingu, að hluta til fólk með réttindi innan Atvinnuleysistryggingasjóðs en jafnframt um 520 einstaklingar sem hafa fullnýtt rétt sinn og verður þeim tryggður framfærslustyrkur úr Atvinnuleysistryggingasjóði.Samvinna Hluti þess hóps sem nýtur framfærslu sveitarfélaga er án efa vinnufær og því er í samkomulaginu lögð áhersla á að hann geti fengið ráðgjöf og annan stuðning hjá Vinnumálastofnun eða á vegum stéttarfélaga. Til þess er gott samstarf nauðsynlegt milli atvinnuráðgjafanna og félagsráðgjafa sveitarfélaganna. Markviss þjónusta við þennan hóp á að hefjast á næsta ári. Eins er áformað öflugt samstarf Vinnumálastofnunar, sveitarfélaga og starfsendurhæfingarsjóðsins VIRK fyrir fólk úr þessum hópi sem getur nýtt sér atvinnutengda starfsendurhæfingu. Loks er stefnt að fjölgun Atvinnutorga í samstarfi Vinnumálastofnunar og sveitarfélaga fyrir ungmenni á aldrinum 16–25 ára sem þurfa mikinn stuðning til að komast í vinnu eða virkni.Þjóðarátak Ég er nokkuð viss um að hvergi annars staðar hafi þjóð sameinast jafn eindregið í aðgerðum til að fyrirbyggja alvarlegar afleiðingar langtímaatvinnuleysis. Stjórnvöld gáfu tóninn um þessar áherslur en ein hefðu þau ekki áorkað miklu. Hér hefur sýnt sig hve miklu er hægt að koma til leiðar með samtakamættinum. Ríki og sveitarfélög, samtök launafólks og atvinnurekenda, skólakerfið, félagasamtök og almenningur hafa lagst á eitt í sannkölluðu þjóðarátaki gegn atvinnuleysi. Þess vegna hefur fjöldi fólks átt kost á áhugaverðum störfum, tekið þátt í nýsköpunarverkefnum, stundað nám eða fengist við önnur uppbyggileg og áhugaverð verkefni, fólk sem annars hefði þurft að berjast eitt gegn lamandi áhrifum atvinnuleysis, afskiptaleysis og innihaldslausra daga. Ég treysti því að áfram verði sterk samstaða um þær aðgerðir sem hér eru kynntar. Allt sem gert er í þessum tilgangi mun gera samfélagið miklu sterkara og betra þegar upp er staðið en ella. Efling atvinnulífs og fjölgun starfa er þó ávallt mikilvægasta verkefnið. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Guðbjartur Hannesson Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira