Eins árs starfs- afmæli Specialisterne á Íslandi 2. apríl 2012 06:00 Í dag er alþjóðlegur dagur einhverfra. Þennan dag fyrir ári opnaði sjálfseignarstofnun Specialisterne á Íslandi mats- og þjálfunaraðstöðu sína fyrir einstaklinga á einhverfurófi. Þann 4. ágúst mættu síðan fyrstu sex einstaklingarnir til okkar í mats- og þjálfunarferlið. Frá þeim tíma hafa 16 einstaklingar verið hjá okkur og í dag eru þrír þeirra í launaðri vinnu og aðrir þrír í starfsnámi sem er undanfari launaðrar vinnu. Starfsemi Specialisterne byggist á hugmyndafræði sem Thorkil Sonne hefur þróað með sínu góða starfsfólki í Danmörku allt frá árinu 2004. Í stuttu máli gengur verkefnið út á það að finna og fá til okkar einstaklinga með greiningu á einhverfurófinu, meta þá og þjálfa til sjálfshjálpar. Þeir 16 einstaklingar sem hafa verið hjá okkur á þessu ári eiga það flestir sameiginlegt að hafa ekki verið úti á hinum almenna vinnumarkaði. Þeir höfðu ekki haft hvatningu til að vakna til neinna sérstakra starfa og höfðu því oftar en ekki litla tilfinningu fyrir tilgangi sínum í hinu daglega lífi. Hjá okkur hafa þessir einstaklingar þurft að mæta alla virka daga vikunnar og vinna í upphafi verkefni sem hjálpa okkur að meta almenna getu þeirra og finna helstu styrkleika og veikleika. Til að finna sem flestum störf við hæfi hafa þessir einstaklingar fengið tækifæri í starfsnámi hjá m.a. Reykjavíkurborg, Tölvulistanum, Menntaskóla Kópavogs, Nóa Síríus og Vistor. Þá höfum við einnig fengið til okkar nokkur skráningarverkefni sem við höfum unnið á starfsstöð okkar í Síðumúla 32. Það er tilfinning okkar, sem hefur líka verið staðfest af mörgum aðstandendum skjólstæðinga okkar, að á þeim tíma sem liðinn er frá því að starfsemi hófst hafi almenn vellíðan þessara einstaklinga batnað mikið og trú þeirra á sjálfa sig og umhverfið orðið meiri. Ný störf fyrir skjólstæðinga okkar og betri líðan þeirra gefur okkur trú og kraft til að halda áfram starfinu þrátt fyrir erfiðan rekstrargrundvöll. Fjárhagsleg staða Specialisterne er í mikilli óvissu, en til dagsins í dag höfum við ekki haft úr öðru að spila en styrkveitingu frá Menntaáætlun ESB, Leonardo, og Starfsendurhæfingarsjóði VIRK, og framlögum frá fyrirtækjum og velunnurum. Um miðjan síðasta mánuð var samþykkt styrkveiting til Specialisterne frá velferðarráðuneytinu, sem er vel, en sá styrkur dugir ekki einn og sér til að tryggja tilveru okkar yfir næstu áramót. Við bíðum enn svara frá öðrum stofnunum og trúum og vonum að starfsemi Specialisterne eigi hljómgrunn hjá þeim sem deila út fjármunum hins opinbera. Hér birtist að lokum listi yfir þau fyrirtæki og þær stofnanir sem hafa létt okkur lífið með styrkjum í formi ýmissa gjafa, peningaframlögum og margs konar fyrirgreiðslu. Alcan á Íslandi, Arion banki, Blómaval, Borgarfjarðarhreppur, DK hugbúnaður, Efla verkfræðistofa, Fjölsmiðjan, Frón kexverksmiðja, Garðheimar, Innnes, Hreyfing, Intellecta, Íslandsbanki, Litaland, Marel, Menntaáætlun ESB, Nói Síríus, Penninn, Síminn, Tölvulistinn, Seltjarnarneskaupstaður, Sveitarfélagið Garður, Reykjavíkurborg, Reitir fasteignafélag, Vífilfell, Umsjónarfélag einhverfra, Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis og Ölgerðin. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar