Sujud er orðin þriggja ára Ari Tryggvason skrifar 6. febrúar 2012 06:00 Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddist þetta barn, saklaust, óafvitandi um aðstæðurnar sem hún fæddist í. Dagurinn var 8. janúar 2009 á 13. degi 22 daga árása Ísraelshers á Gaza. Sujud fæddist fyrir tímann. Þremur dögum fyrr, 5. janúar voru 29 nánir ættingjar móður hennar, Nawal Samuni drepnir. Ísraelsher drap alls 48 meðlimi Samuni ættarinnar þennan dag. Sársaukinn er meitlaður í andlit Nawal þegar hún lýsir þessu fyrir blaðamanni El Mundo, Rosa Meneses. Sársaukinn hverfur ekki við að segja frá honum. Hann dvelur áfram innra með hinni ungu móður sem var tvítug þegar hún fæddi Sujud, sársauki sem andlitið getur ekki falið. Ný innrás í undirbúningi?Er nýtt stríð gegn Gaza í undirbúningi? Í fréttum RUV 3. janúar segir að svo sé. Hershöfðinginn Tal Hermoni segir að herinn sé reiðubúinn fyrir stórfellda innrás á Gaza, sem „fyrirbyggjandi“ aðgerð, styttra en öflugra stríð. Þetta er framhald fréttar frá því 28. desember. Þar segir hershöfðinginn Benny Gantz að nýtt stríð verði ekki umflúið en hann bar lof á árangur stríðsins fyrir þremur árum, „það tókst fullkomlega“. Þessi árangur á eitt þéttbýlasta svæði veraldar felst í því að 20 þúsund byggingar voru eyðilagðar; heimili, verksmiðjur, bændabýli, bænahús og skólar voru jafnaðir við jörðu. „Ísraelar frömdu þar alvarlega stríðsglæpi m.a. með því að ráðast á stöðvar Sameinuðu Þjóðanna þar sem flóttafólk hafði leitað skjóls og með því að beita fosfór-íkveikjusprengjum. 1.387 Palestínumenn voru drepnir, þar af voru 773 óvopnaðir óbreyttir borgarar, aðallega konur og börn. 257 börn yngri en 16 ára gömul voru drepin. 5.500 voru særðir, meira en 700 konur og 1.800 börn hafa þurft langtíma læknishjálp og endurhæfingu sára sinna.“ Hver er framtíð Sujud, verður hún drepin í næstu innrás? Þar sem „fælingarmáttur“ stríðsins fyrir þremur árum hefur dvínað verður önnur umferð ekki umflúin samkvæmt orðum Benny Gantz, yfirmanni ísraelska heraflans. Það verður að vera sársaukafullt leifturstríð. Það er sem sagt raunveruleg hætta á því að móðir Sujud, hin 23 ára Nawal, þurfi að ganga í gegnum nýtt helvíti. Fleiri úr Samuni ættinni gætu verið drepnir, særðir eða örkumlaðir. Gaza og ÍranSamhliða árásum Ísraela gegn Gaza, „Operation Cast Lead“ fyrir þremur árum, sendi Pentagon 100 „US-European Command“ (EUCOM) hernaðarsérfræðinga til að aðstoða Ísraela við uppbyggingu nýs, háþróaðs radarvarnarkerfis sem hluta nýrra sameiginlegra eða samofinna loftvarna, svokallað „X-band early warning radar system“. Meðan athygli fjölmiðla beindist að Gaza bar lítið sem ekkert á þessari mikilvægu hernaðaraðgerð. Opinbera skýringin var sú að stjórnin í Tel Aviv hafi beðið um þessa aðstoð, sem vörn gegn hugsanlegri eldflaugaárás frá Íran. (M. Chossudovsky, Global Research, 23. des. 2011) Hvað er í gangi núna? Miklar væringar milli Íran og vestrænna ríkja, þá sérstaklega Bandaríkjanna-Ísrael. Á sama tíma hóta fulltrúar Ísraelshers nýjum aðgerðum gegn Gaza. Leyniskyttur skjóta á drengi við störf sínEn það eru alltaf aðgerðir í gangi. Neyðin ýtir ungum mönnum til að afla sér tekna með öllum tiltækum ráðum eins og að safna steypubrotum úr hrundum húsum. Innflutningur á sementi, járni og öðru til byggingaframkvæmda er mjög takmarkaður, nægir einungis fyrir um 5% af endurbyggingarþörfinni. Með sama áframhaldi tæki 78 ár að endurbyggja Gaza. Drengirnir sem reyna að afla sér tekna með söfnun byggingarefnis setja sig í mikla hættu. Breski læknirinn David Halpin tók saman mál 23 drengja sem höfðu orðið fyrir skoti ísraelskra leyniskyttna á tímabilinu 26. mars 2010 til 23. desember sama ár við þessa iðju. Leyniskytturnar miða sérstaklega á útlimi. Flest skotsárin voru á fótleggjum, einstaka á handleggjum og í síðuna. (David Halpin, Global Research, 20. jan. 2011) Það sem hér hefur verið tíundað er algert brot á Genfarsáttmála nr. 1957 þar sem stríðsglæpamenn verða að svara til saka fyrir brot sín. Höfum það í huga að stjórnvöld í Tel Aviv gera ekkert nema fá grænt ljós frá stjórninni í Washington, hvort sem það er árás á Gaza eða á kjarnorkuver Írana. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar